2019

Fréttabréf Félags eldri borgara Rangárvallasýslu

Fréttabréf félags eldri borgara í Rangárvallasýslu frá 1. jan. til september 2019

Stjórn félagsins skipa: Formaður Guðrún Aradóttir, ritari Svavar Hauksson, gjaldkeri Þórunn Ragnarsdóttir, meðstjórnendur Sigrún Ólafsdóttir og Júlíus P. Guðjónsson ,varamenn Þorsteinn Markússon og Vilborg Gísladóttir, skoðunarmenn eru Rósa Aðalsteinsdóttir og Helga Þorsteinsdóttir, varamenn eru Jóhanna Jensen og Gyða Guðmundsdóttir

í skemmtinefnd eru Sigríður Erlendsdóttir, Þorgerður Jóna Guðmundsdóttir, Vilborg Gísladóttir og Ásgerður Sjöfn Guðmundsdóttir,

í spilanefnd á Hvolsvelli eru Kristín Sigurðardóttir og Svavar Hauksson, í spilanefnd á Hellu er Jarþrúður Kolbrún Guðmundsdóttir og Svavar Hauksson.

Í kjararáði eru Halldór Gunnarsson, Júlíus P. Guðjónsson og Ingibjörg Marmundsdóttir

Í ferðanefnd eru Þórunn Ragnarsdóttir, Svavar Ólafsson og Anna Björgvinsdóttir.

 

Spilin verða áfram á fimmtudögum kl;: 14.00 til 16:00 til skiptis á Hellu og Hvolsvelli og byrja á Hellu 10. janúar.

Í handverki til vors verður leiðbeinandi í útskurði Hjálmar Ólafsson í smíðastofu Hvolsskóla föstudaga kl: 13:30 til 16:00 og byrjar 11.janúar, með handverk í Menningarhúsinu á Hellu verða leiðbeinendur Guðrún Óskarsdóttir, Brynja Bergsveinsdóttir og Þórunn Sigurðardóttir þriðjudaga og miðvikudaga kl: 13:00 til 16:00.og byrja 8. janúar.

Gjald á önn er 2.000,- fyrir félagsmenn en 4.000,- fyrir utanfélagsmenn.

Handverkssýning er áætluð 4. og 5. maí á Hvoli Hvolsvelli.

Nánar auglýst síðar

Hringur kór eldri borgara starfar á mánudögum kl 16:00 til 18:00 í Menningarhúsinu á Hellu og byrjar 14. janúar 2019, alltaf pláss fyrir nýja félaga í allar raddir, upplýsingar veita Jón Ragnar Björnsson formaður sími 699-0055 og Kristín Sigfúsdóttir söngstjóri sími 483-1629/ 663-6217

Leikfimi er í Hvolnum á Hvolsvelli mánudaga og fimmtudaga kl: 10:00. Ganga og skokk er í íþróttahúsinu á Hvolsvelli föstudaga kl: 9:00.

Ganga í íþróttahúsinu á Hellu föstudaga kl: 11:00 til 12:00

Boccia er í íþróttahúsinu á Hvolsvelli miðvikudaga kl: 8:30-9:30 & fimmtudögum kl: 9:00-10:00, umsjónarmaður Gunnar Marmundsson 864-6192.

Boccia er í íþróttahúsinu á Hellu mánudaga og miðvikudaga kl: 11:00 – 12:00 umsjónarmaður Ólafur Guðmundsson 487-5939.

Áætlað er að hafa aðalfund félagsins í Menningarhúsinu á Hellu fimmtudaginn 21. mars 2019 og hefst hann kl: 13:00 síðan verður spilað á eftir.Nánar auglýst síðar.

Messa á Uppstigningadag, degi aldraðra, þann 30. maí 2019, ekki ákveðið hvar hún verður. Rútuferð verður eins og áður í þessa messu. Nánar auglýst síðar.

Sumarstarfið: Sundleikfimi verður í sumar í sundlaugunum á Hellu og Hvolsvelli ef næg þátttaka fæst.

Hið sívinsæla pútt á Strandavelli verður á þriðjudögum og byrjar eftir miðjum maí, nánar auglýst síðar Allar upplýsingar eru hjá Mörtu Arngrímsdóttur .487-8249/868-4511

Vorferðin í júní verður mánudaginn 24. júní 2019 farið til Vestmannaeyja.

Verð ekki komið. Nánar auglýst síðar.

 

 

Sumarferðin :Búið er að panta í ferð dagana 15. til 18. júlí 2019 fyrir 32 farþega. Farið verður með Baldri yfir Breiðafjörðinn og gist á Hótel Flókalundi allar nætur. 2 dagur Patreksfjörður, Tálknafjörður, Bíldudalur , Selárdalur. 3.dagur Hrafnseyri, Þingeyri og Flateyri. 4. dagur ekið heim Barðaströnd og Dalir. Ekki öll verð tilbúin en verða auglýst þegar þau berast. Þeir félagar sem hafa hug á að koma með vinsamlega skráið nöfn ykkar sem fyrst hjá Þórunni í síma 487-5922eða 892-5923 því hótelið verður að fá töluna vegna gistingar tveimur mánuðum fyrir brottför því þetta er mesti annatími sumarsins.

Haustferðin verður farin fimmtudaginn 22. ágúst 2019 ekið verður upp Landsveit og niður Þjórsárdal eða Veiðivötn. Nánar auglýst í síðar.

 

Fréttabréfið verður sett á heimasíður Rangárþings eystra, Rangárþings ytra og Ásahrepps þar í pakka “Félagsstarf eldri borgara” svo félagsmenn geti séð það þar.

 

Vonum við hjá stjórn að þetta verði gott ár hjá okkur eins og ævinlega.

 

Félagsmenn vinsamlega auglýsið starfið okkar og komið á framfæri að allir Rangæingar 60 ára og eldri séu velkomnir í félagið, það er alltaf gott að fá nýja félaga og þar með nýjar hugmyndir.

Guðrún Aradóttir , Svavar Hauksson, Þórunn Ragnarsdóttir, Sigrún Ólafsdóttir, Júlíus P. Guðjónsson, Þorsteinn Markússon og Vilborg Gísladóttir.

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?