Að Laugalandi

Bókasafnsvörður er Regúla Verena Rudin, netfangið er bokasafn@laugaland.is og sími bókasafnsins er 487-6547.

Opnunartími fyrir utan skólatíma Laugalandsskóla er 19:30-21:30 á fimmtudagskvöldum.

Á Hellu

Bókasafnið í Grunnskólanum á Hellu er starfrækt sem skólabókasafn og jafnframt sem almenningsbókasafn. Hlutverk bókasafnsins er að þjóna bæjarbúum og nærsveitamönnum, nemendum, kennurum og öðru starfsfólki skólans. Á skólatíma er safnið opið fyrir nemendur og starfsmenn.

Almennur opnunartími bókasafnsins frá 1. september til 31. maí:

  • Mánudaga kl. 16:00 - 17:30
  • Fimmtudaga kl. 20:00 - 21:00

Útlánstími bóka er almennt fjórar vikur nema á nýjum bókum, en útlánstími þeirra er aðeins ein vika. 

Allar bækur og annað efni í eigu safnsins er skráð í bókasafnskerfið

Safnkostur telur u.þ.b. 10.000 eintök, bækur, tímarit, myndbönd, snældur og geisladiska. Nokkuð gott handbókasafn er til staðar og fer það stækkandi. Stærstur hluti bóka er keyptur inn í nóvember og desember ár hvert en þar fyrir utan kaupir safnið inn bækur allt árið af bókaklúbbum og á sértilboðum.

Vinnuaðstaða er til staðar á safninu og ein tölva er þar til almenningsnota. 

Stjórnandi safnsins er Kristín Sigfúsdóttir skólastjóri.

Í Þykkvabæ

Almennur opnunartími bókasafnsins frá 15. september til 15. maí er eftirfarandi:

  • Þriðjudaga kl. 17:00 - 18:30
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?