13. okt. kl. 20:00
Guitar Islancio, skipað gítarleikurunum Birni Thoroddsen og Þórði Árnasyni og Jóni Rafnssyni á bassa, leikur í Hlöðueldhúsinu í Þykkvabæ, fimmtudaginn 13.október og hefjast tónleikarnir kl.20.00.
Tónleikadagskrá tríósins er skemmtileg blanda af frumsömdu efni, íslenskum þjóðlögum, sígildum jazzlögum og þekktum popp- og rokklögum og stemming á tónleikum mikil, enda tróið rómað fyrir kraftmikla og líflega spilamennsku.
Guitar Islancio hefur starfað frá árinu 1998 og fagnar því 25 ára starfsafmæli á næsta ári.
Aðgangeyrir er 3.500,- og eru miðar seldir við innganginn.
Nánar um tríóið á www.guitarislancio.is
Björn Thoroddsen – gítar
Þórður Árnason – gítar
Jón Rafnsson – bassi
Þórður Árnason – gítar
Jón Rafnsson – bassi