Stjórn Sorpstöðvar Rangárvallasýslu
Aðalmaður
Eggert Valur Guðmundsson
Varamaður:
Björk Grétarsdóttir
Opnunartímar á Strönd
A.T.H. Lokað er á rauðum dögum.
Mánudagar: Lokað
Þriðjudagar: 13:00 til 17:00
Miðvikudagar: 13:00 til 17:00
Fimmtudagar: 13:00 til 17:00
Föstudagar: 13:00 til 17:00
Laugardagar: 11:00 til 15:00
Sunnudagar: Lokað
Sími: 4875157
Netfang: strond@ry.is

Allan annan úrgang en heimilisúrgang, s.s. timbur, málma, grófan úrgang o.fl., skal fara með á gámavöll á Strönd. Einnig er tekið á móti heimilisúrgangi á gámavelli. Húsráðanda er heimilt að afsetja á sjö daga fresti heimilisúrgang allt að 2 m³ án gjaldtöku. Gjald er að öðru leyti tekið fyrir úrgang skv. vigt og gjaldskrá. Aðal Gámavöllur sveitarfélagsins er á Strönd á Rangárvöllum.
Fyrirtæki, á sama hátt og frístundahúsaeigendur, annast sjálf um sín sorpmál. Fyrirtæki geta valið að fara með flokkaðan úrgang á gámavöllinn á Strönd eða kaupa þjónustu hjá verktökum sem slíka þjónustu bjóða. Fyrirtæki greiða fyrir allan gjaldskyldan úrgang, skv. vigt og gjaldskrá, sem komið er með á Strönd.