Byggðasamlag um félagsþjónustu í Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu tók til starfa árið 2003. Að byggðasamlaginu standa Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdals-hreppur og Skaftárhreppur, en sá síðastnefndi gekk að fullu í samlagið um áramótin 2005-2006.

Stofnsamþykktum byggðasamlagsins var breytt á aukaaðalfundi í ágúst 2013. Um áramótin 2013 – 2014 bættist lögbundin sérfræðiþjónusta sveitarfélaga við leik- og grunnskóla við starfsemina í kjölfar niðurlagningar Skólaskrifstofu Suðurlands sem haft hafði sérfræðiþjónustu á svæðinu með höndum frá árinu 1996.

Byggðasamlagið skiptist nú í tvær sjálfstæðar deildir undir einni stjórn, félagsþjónustudeild og skólaþjónustudeild (sjá hnapp hér til hliðar) og heitir Félags – og skólaþjónusta Rangárvalla – og Vestur-Skaftafellssýslu bs.

Í stjórn byggðasamlagsins sitja 5 fulltrúar, einn frá hverju sveitarfélagi sem aðild á að því.

Félagsþjónustan- og skólaþjónustan er til húsa að Suðurlandsvegi 1-3 á Hellu, sími 487-8125.

Nánari upplýsingar um hvora deild fyrir sig er aðgengileg á heimasíðu félags- og skólaþjónustunnar.www.felagsogskolamal.is

Stjórn félags- og skólaþjónustu Rangárvalla og V-Skaftafellssýslu bs.

Félagsmálanefnd Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýlu

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?