Málsnúmer 1404022

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 69. fundur - 02.05.2014

Orkufjarskipti hf óska eftir framkvæmdaleyfi til að leggja ljósleiðarastreng frá Snjóöldufjalli að Hörðubreiðarhálsi. Um er að ræða 1. áfanga að lögn ljósleiðara frá Snjóöldu að Kirkjubæjarklaustri.
Ljósleiðaralagning fellur ekki undir lög um mat á umhverfisáhrifum.
Skipulagsnefnd samþykkir í samræmi við 13. gr skipulagslaga nr. 123/2010, að veita framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðarastrengs þegar jákvæðar umsagnir Forsætisráðuneytis og Umhverfisstofnunar liggja fyrir. Einnig telur nefndin að leita þurfi umsagnar Fiskistofu og Veiðimálastofnunar ásamt Veiði- og fiskræktarfélagi Landmannaafréttar vegna þverunar Tungnaár.

Skipulagsfulltrúa er falið að gefa út framkvæmdaleyfið þegar jákvæðar umsagnir liggja fyrir.

Skipulagsnefnd Rangárþings ytra - 71. fundur - 07.07.2014

Orkufjarskipti hf óska eftir framkvæmdaleyfi til að leggja ljósleiðarastreng frá Snjóöldufjalli að Hörðubreiðarhálsi.
Lagt fram tillaga að efnisinnihaldi framkvæmdaleyfis.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi til Orkufjarskipta.