Málsnúmer 1501060

Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 5. fundur - 19.03.2015

Leikskólastjórar kynna sínar hugmyndir
Tillaga er frá leikskólastjórum að sumarlokun leikskólanna verði með eftirfarandi hætti:



Sumarlokun Leikskólans á Laugalandi árið 2016 verði frá 27 júní til 29 júlí.



Sumarlokun Leikskólans Heklukots færist til milli ára yfir þriggja ára tímabil. Sumarlokanir séu á bilinu frá miðjum júní fram í miðjan ágúst. Þannig verði lokað 2016 frá miðjum júní fram í miðjan júlí, 2017 lokað júlímánuð og 2018 sumarlokun frá miðjum júlí fram í miðjan ágúst. Sumarlokun sumarið 2016 verður því frá 20 júní til 15 júlí.



Samþykkt samhljóða