Málsnúmer 1505022

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 13. fundur - 13.05.2015

Vísað er til umfjöllunar um einstaka liði en fundargerðin að öðru leyti staðfest.



8.1 Fjarskiptamál

Sveitarstjórn telur mikilvægt að nýta alla möguleika til að koma ídráttarörum fyrir ljósleiðara þar sem verið er að koma fyrir jarðstrengjum á stofnleiðum.



Tillaga er um að heimila sveitarstjóra að nýta allt að 10 milljónir til kaupa á ídráttarrörum og vegna annars tilfallandi frumkostnaðar fyrir þetta verkefni. Um þetta er gerður Viðauki I fyrir 2015. Fjárfestingu að fjárhæð 10.000 þús. kr. verði mætt með lækkun á handbæru fé og eignasölu.



Samþykkt samhljóða