Málsnúmer 1703033
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 110. fundur - 03.04.2017
Landeigendur að spildu sem skilin var eftir við kaup sveitarfélagsins á Nesi, landnr. 164533 árið 1973, óska eftir að sveitarstjórn staðfesti afmörkun spildunnar eins og hún er sett fram á uppdrætti frá Landnotum dags. 14.3.2017. Eftir staðfestingu mun lóðin verða stofnuð og fengi nafnið Ártún 4A.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við afmörkun spildunnar og leggur til að gengið verði frá stofnun lóðarinnar skv. meðfylgjandi uppdrætti.