Lagt er til að svara fyrirspurnunum með eftirfarandi hætti:
10.1 Kemur það til greina að ykkar mati að koma á fót frístundastyrkjum í sveitarfélaginu? Svar sveitarstjórnar: Það kemur vissulega til greina og hefur verið rætt en hingað til hefur áherslan verið lögð á að styðja beint við þau félagasamtök sem eru með skipulagða íþrótta- og tómstundastarfsemi í sveitarfélaginu.
10.2 Hefur sveitarfélagið áform um að bjóða upp á aðstöðu sem gerir skóla- og íþróttahópum kost á að geta þjálfað og fengið kennslu í styrktarþjálfun? Svar sveitarstjórnar: Það hefur ekki verið tekin nein ákvörðun um sérstakar aðgerðir í þá veru umfram þá aðstöðu sem þegar er til staðar í okkar ágætu íþróttaaðstöðu á Hellu, Laugalandi og Þykkvabæ.
10.3 Er von á því að íþróttavöllurinn á Hellu komist í boðlegt ástand á næstunni undir keppni- og æfingar í íþróttum? Svar sveitarstjórnar: Það er ríkur vilji til þess að hafa alla aðstöðu til íþróttaiðkunar í góðu standi. Fyrir vorið verður að venju haft samráð við íþróttafélögin sem nýta aðstöðuna, um hvað megi betur fara í núverandi aðstöðu og því hrint í framkvæmd í samræmi við fjárheimildir.
Samþykkt samhljóða
Bókun Á-lista: 10.1 Fulltrúar Á-lista vilja skoða möguleika á að koma á fót frístundastyrkjum í sveitarfélaginu til viðbótar við núverandi styrki til íþróttafélaga.
10.2 Fulltrúar Á-lista lýstu yfir áhyggjum sínum varðandi verð og aðstöðu fyrir ungmenni, á 18. fundi sveitarstjórnar þann 9. janúar 2020, er meirihluti sveitarstjórnar samþykkti að semja við núverandi rekstraraðila líkamsræktarstöðvar. Með nýjum rekstaraðila er aðstaða til styrktarþjálfunar ungmenna á Hellu og á Laugalandi afar bágborin nema gegn tiltölulega háu gjaldi, miðað við það sem verið hafði áður. Sveitarfélagið þarf að sjálfsögðu að kanna mögulegar leiðir til að kaupa búnað til að styðja við unga afreksíþróttamenn í sveitarfélaginu.
Lagt er til að svara fyrirspurnunum með eftirfarandi hætti:
10.1 Kemur það til greina að ykkar mati að koma á fót frístundastyrkjum í sveitarfélaginu?
Svar sveitarstjórnar: Það kemur vissulega til greina og hefur verið rætt en hingað til hefur áherslan verið lögð á að styðja beint við þau félagasamtök sem eru með skipulagða íþrótta- og tómstundastarfsemi í sveitarfélaginu.
10.2 Hefur sveitarfélagið áform um að bjóða upp á aðstöðu sem gerir skóla- og íþróttahópum kost á að geta þjálfað og fengið kennslu í styrktarþjálfun?
Svar sveitarstjórnar: Það hefur ekki verið tekin nein ákvörðun um sérstakar aðgerðir í þá veru umfram þá aðstöðu sem þegar er til staðar í okkar ágætu íþróttaaðstöðu á Hellu, Laugalandi og Þykkvabæ.
10.3 Er von á því að íþróttavöllurinn á Hellu komist í boðlegt ástand á næstunni undir keppni- og æfingar í íþróttum?
Svar sveitarstjórnar: Það er ríkur vilji til þess að hafa alla aðstöðu til íþróttaiðkunar í góðu standi. Fyrir vorið verður að venju haft samráð við íþróttafélögin sem nýta aðstöðuna, um hvað megi betur fara í núverandi aðstöðu og því hrint í framkvæmd í samræmi við fjárheimildir.
Samþykkt samhljóða
Bókun Á-lista:
10.1 Fulltrúar Á-lista vilja skoða möguleika á að koma á fót frístundastyrkjum í sveitarfélaginu til viðbótar við núverandi styrki til íþróttafélaga.
10.2 Fulltrúar Á-lista lýstu yfir áhyggjum sínum varðandi verð og aðstöðu fyrir ungmenni, á 18. fundi sveitarstjórnar þann 9. janúar 2020, er meirihluti sveitarstjórnar samþykkti að semja við núverandi rekstraraðila líkamsræktarstöðvar. Með nýjum rekstaraðila er aðstaða til styrktarþjálfunar ungmenna á Hellu og á Laugalandi afar bágborin nema gegn tiltölulega háu gjaldi, miðað við það sem verið hafði áður. Sveitarfélagið þarf að sjálfsögðu að kanna mögulegar leiðir til að kaupa búnað til að styðja við unga afreksíþróttamenn í sveitarfélaginu.
Margrét Harpa Guðsteinsdóttir
Steindór Tómasson
Yngvi Harðarson