Málsnúmer 2206004F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Rangárþings ytra - 2. fundur - 22.06.2022
Vísað er til umfjöllunar um einstaka liði en fundargerðin að öðru leyti til kynningar.
-
Oddi bs - 1 Stjórnendur Grunnskólans á Hellu hafa óskað eftir að bæta við stöðugildi sérkennara/þroskaþjálfa fyrir skólaárið 2022-2023 til að mæta þörf á auknum stuðningi við nemendur á yngsta stigi.
Stjórn Odda telur þörf þá því að verða við þessari beiðni og leggur fram tillögu að viðauka 2 við áætlun Odda bs. 2022. Gert er ráð fyrir að launakostnaður Grunnskólans á Hellu hækki um 4,2 mkr árið 2022. Óskað er eftir að viðaukanum verið mætt með auknum framlögum sveitarfélaganna sem skiptast þannig að framlög Rangárþings ytra hækka um 3.510 þús. og framlög Ásahrepps hækka um 690 þús.
Samþykkt samhljóða Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og leggur fram viðauka 4 við fjárhagsáætlun Rangárþings ytra 2022-2025. Viðaukinn gerir ráð fyrir hækkun launakostnaðar í fræðslumálum að fjárhæð kr. 3.510 þús. Viðaukanum er mætt með lækkun á handbæru fé.
Samþykkt samhljóða