Málsnúmer 2212007
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 8. fundur - 05.01.2023
Reynir Þorsteinsson fyrir hönd Landgræðslunnar óskar eftir að fá að skipta út lóð úr Gunnarsholti L164495 undir Kornbrekku, íbúðarhús í eigu Landgræðslunnar. Lóðin verði 1648,9 m², fengi landeignanúmerið L235127 og héldi heitinu Kornbrekka. Umsókn í samræmi við gögn frá Landgræðslunni.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt.