Málsnúmer 2402061
Vakta málsnúmerByggðarráð Rangárþings ytra - 22. fundur - 28.02.2024
Erindi frá Ásahreppi.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 30. fundur - 12.06.2024
Erindi frá Ásahreppi.
Lagt fram erindi frá hreppsnefnd Ásahrepps þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarstjórna Rangárþings ytra og Rangárþings eystra um að hefja formlegar viðræður þessara þriggja sveitarfélaga í Rangárvallasýslu um sameiningu.
Tekið stutt fundarhlé.
IPG, BG og EÞI tóku til máls.
Lagt til að hafna erindi Ásahrepps.
Samþykkt með fimm atkvæðum. EÞI og BG greiða atkvæði á móti.
Bókun Á-lista
Þann 26 september 2021 höfnuðu íbúar Ásahrepps með miklum meirihluta sameiningu fimm sveitarfélaga á Suðurlandi. Meðfylgjandi erindi Ásahrepps nú er niðurstaða úr skoðanakönnun sem framkvæmd var samhliða forsetakosningunum þann 1 júní s.l. Þar kemur fram að meirihluti íbúa Ásahrepps eða 56% þeirra sem afstöðu tóku eru ekki hlynntir því að sveitarfélagið sameinist öðru sveitarfélagi. Það er því mat undirritaðra að það sé ekki gott veganesti inn í sameiningarviðræður þessara sveitarfélaga. Staða sveitarfélagsins Ry er sterk og mikil uppbygging í gangi og álögur á íbúa hóflegar í samanburði við sambærileg sveitarfélög. Það er skoðun undirritaðra að það sé ekkert sem þrýsti á að Ry hefji formlegar sameiningarviðræður allra sveitarfélaganna í Rangárvallasýslu að svo stöddu. Sveitarfélögin þrjú í Rangárvallasýslu hafa um árabil átt í farsælu samstarfi um fjölmörg verkefni og fyrir það ber að þakka (EVG, MHG, VMÞ, ÞDÞ).
Bókun IPG:
Fyrir liggur erindi frá sveitarstjórn Ásahrepps um að hafnar verði sameiningarviðræður sveitarfélagana þriggja í Rangárvallasýslu. Í ljósi þess hve óafgerandi niðurstaða þeirra sem vilja sameinast við önnur sveitarfélög er, telur undirritaður ekki tímabært að hefja sameiningarviðræður allrar sýslunnar á þessu stigi.
Bókun EÞI og BG:
Það er skylda sveitarstjórnar að taka þátt í þeirri vinnu sem henni er falin og því ekki rétt að hafna beiðni um sameiningu. Því væri eðlilegra að gefa íbúum Rangárþings ytra færi á að taka afstöðu til málsins með því að kjósa um þennan sameiningarkost.

Byggðarráð tekur vel í erindið og leggur til að fela sveitarstjóra og oddvita að ræða við Ásahrepp um að finna heppilegan fundartíma.
Samþykkt samhljóða.