Málsnúmer 2411059

Vakta málsnúmer

Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd - 12. fundur - 10.12.2024

Nefndin tók fyrir ábendingu sem var send inn í hugmyndagátt sveitarfélagsins. Ábendingin snerist um að breyta ætti slagorði sveitarfélagsins vegna þess að það væri það sama og slagorð stjórnmálaflokks, en slagorðið er „Fyrir okkur öll“. Við nánari athugun er slagorðið ekki eingöngu tengt viðkomandi stjórnmálaflokki heldur hafa margir nýtt sér það, enda hefur það breiða skírskotun. Hugmyndasamkeppni var haldin árið 2021 um slagorð sveitarfélagsins og var slagorðið valið úr innsendum tillögum.
Nefndin telur ekki ástæðu til að breyta slagorðinu að svo stöddu.