Málsnúmer 2501074

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 133. fundur - 29.01.2025

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Guðrúnar Bjarnadóttur um leyfi til að byggja gestahús á lóð sinni skv. aðaluppdráttum frá Tendra arkitektar, dags. 4.1.2025.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Skilgreina þarf viðkomandi glugga með öryggisgleri í stað þess að vísa í almenn ákvæði reglugerðar
Vantar að sýna vélræna loftræstingu á salerni.
Ef nýta skal milliloft sem svefnloft skal setja flóttastiga frá björgunaropi.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 134. fundur - 05.02.2025

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Guðrúnar Bjarnadóttur um leyfi til að byggja gestahús á lóð sinni skv. aðaluppdráttum frá Tendra arkitektar, dags. 4.1.2025.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Vantar að sýna merkingu öryggisglerja þar sem það á við.
Í texta segir að gólfburður eigi að vera 45x45 en það getur ekki staðist.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 135. fundur - 19.02.2025

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Guðrúnar Bjarnadóttur um leyfi til að byggja gestahús á lóð sinni skv. aðaluppdráttum frá Tendra arkitektar, dags. 4.1.2025. Gerðar voru athugasemdir á síðasta afgreiðslufundi og hefur hönnuður brugðist við með uppfærðum aðaluppdráttum.
Frestað