Málsnúmer 2502015

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 39. fundur - 12.02.2025

Lögð fram svohljóðandi ályktun Félags eldri borgara í Rangárvallasýslu um bætta læknisþjónustu í Rangárþingi:
"Heilbrigðisþjónusta er einn af innviðum þjóðfélagsins, rétt eins og vegakerfið. Eftir því sem aldurinn færist yfir vex þörfin fyrir heilbrigðisþjónustu. Það rímar ekki við algera vöntun á heimilislæknum á svæðinu. Aðalfundur Félags eldri borgara í Rangárvallasýslu fer fram á að snarlega verði bætt úr læknisþjónustu á svæðinu. Það nær engri átt að 4.000 íbúar, þar af um 1.000 60 ára og eldri séu án læknis dögum saman. Auk þess sem hundruð þúsunda ferðalanga ferðast um svæðið á ári hverju"

Sveitarstjórn tekur undir ályktun félagsins.

Samþykkt samhljóða.