Málsnúmer 2502078

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 136. fundur - 26.02.2025

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna beiðni Helga Þóris Sveinssonar, fyrir hönd Öldurs ehf., kt. 510417-0380 um starfsleyfi fyrir framleiðslu á áfengum drykkjum, á lóðinni Rangárbakki 2, L174561, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 25.02.2025.
Ekki er hægt að gefa jákvæða umsögn þar sem byggingarleyfi fyrir breyttri notkun hússins hefur ekki enn verið gefið út. Aðilum er bent á að til að unnt verði að gefa út byggingarleyfið þurfa staðfestingar iðnmeistara að liggja fyrir.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 137. fundur - 05.03.2025

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna beiðni Helga Þóris Sveinssonar, fyrir hönd Öldurs ehf., kt. 510417-0380 um starfsleyfi fyrir framleiðslu á áfengum drykkjum, á lóðinni Rangárbakki 2. L174561, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 25.02.2025.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði. Einungis er um að ræða rými 02 0101 sem ætlað verður til framleiðslu á miði og bjór, ásamt aðstöðu fyrir starfsfólk í rými 01 0101.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.