Málsnúmer 2503021

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Rangárþings ytra - 35. fundur - 26.03.2025

Vegagerðin óskar eftir framkvæmdaleyfi til styrkingar og lagningar bundins slitlags á 7,5 km kafla á Hagabraut frá Landvegi að Reiðholti. Að auki verði farið í lagfæringar á vegstæði og tengingum á nokkrum stöðum. Samhliða verði farið í aukningu vegskeringa á völdum stöðum til að auka umferðaröryggi. Sett verði upp búfjárræsi á þremur stöðum. Efni úr skeringum verður notað til vegagerðarinnar en til viðbótar verður efni nýtt úr námu í landi Varghóls, E26. Álit Skipulagsstofnunar frá 2. ágúst 2024 liggur fyrir þar sem viðkomandi framkvæmd skal ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

Byggðaráð samþykkir að útgáfu framkvæmdaleyfis vegna endurbóta og styrkinga á Hagabraut frá Landvegi að Reiðholti sbr. framlagðan uppdrátt og önnur gögn málsins verði sett af stað. Byggðaráð heimilar skipulagsfulltrúa að gefa út leyfið og hafa eftirlit með framkvæmdunum. Nefndin vill árétta að öll efnistaka úr námum er háð framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar og að auki starfsleyfis frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands ef og þegar um sölu efnis er að ræða.

Samþykkt samhljóða.

Skipulags- og umferðarnefnd - 41. fundur - 03.04.2025

Vegagerðin óskar eftir framkvæmdaleyfi til styrkingar og lagningar bundins slitlags á 7,5 km kafla á Hagabraut frá Landvegi að Reiðholti. Að auki verði farið í lagfæringar á vegstæði og tengingum á nokkrum stöðum. Samhliða verði farið í aukningu vegskeringa á völdum stöðum til að auka umferðaröryggi. Sett verði upp búfjárræsi á þremur stöðum. Efni úr skeringum verður notað til vegagerðarinnar en til viðbótar verður efni nýtt úr námu í landi Varghóls, E26. Álit Skipulagsstofnunar frá 2. ágúst 2024 liggur fyrir þar sem viðkomandi framkvæmd skal ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Byggðaráð samþykkti að veitt yrði framkvæmdaleyfi á fundi dags. 26.3.2025.
Lagt fram til kynningar.

Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 15. fundur - 12.08.2025

Vegagerðin hefur fengið útgefið framkvæmdaleyfi til styrkingar og lagningar bundins slitlags á 7,5 km kafla á Hagabraut frá Landvegi að Reiðholti. Leyfi útgefið 27.3.2025. Að auki verði farið í lagfæringar á vegstæði og tengingum á nokkrum stöðum. Samhliða verði farið í aukningu vegskeringa á völdum stöðum til að auka umferðaröryggi. Sett verði upp búfjárræsi á þremur stöðum. Efni úr skeringum verður notað til vegagerðarinnar en til viðbótar verður efni nýtt úr námu í landi Varghóls, E26. Álit Skipulagsstofnunar frá 2. ágúst 2024 liggur fyrir þar sem viðkomandi framkvæmd skal ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd gerir ekki athugasemdir við veitingu framkvæmdaleyfis lagningar bundins slitlags á 7,5 km kafla á Hagabraut frá Landvegi að Reiðholti. Lagt fram til kynningar.