Málsnúmer 2503069

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 140. fundur - 26.03.2025

Lóðarhafi óskar eftir heimild til að gera breytingar á gildandi deiliskipulagi þar sem ætlunin er að koma fyrir byggingareitum fyrir geymsluskúra fyrir hverja íbúð.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áform lóðarhafa. Erindið verði sent til Skipulags- og umferðarnefndar vegna tengsla við skipulagsmál

Skipulags- og umferðarnefnd - 41. fundur - 03.04.2025

Lóðarhafi óskar eftir heimild til að gera breytingar á gildandi deiliskipulagi þar sem ætlunin er að koma fyrir byggingareitum fyrir geymsluskúra fyrir hverja íbúð.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að veitt verði heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi. Nefndin telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem breytingin víkur að engu leyti frá notkun, útliti og formi viðkomandi svæðis og fer ekki uppfyrir skilgreint nýtingarhlutfall.
Nefndin leggur því til að farið verði um málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en tillagan skuli jafnframt grenndarkynnt öðrum lóðarhöfum á svæðinu.

Skipulags- og umferðarnefnd - 44. fundur - 22.05.2025

Lóðarhafi óskar eftir heimild til að gera breytingar á gildandi deiliskipulagi þar sem ætlunin er að koma fyrir byggingareitum fyrir geymsluskúra fyrir hverja íbúð. Erindið var grenndarkynnt með fresti til athugasemda til og með 13. maí 2025. Engar athugasemdir bárust.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á gildandi deiliskipulagi þar sem heimild verði sett inn fyrir byggingu á smáhýsum utan byggingarreita. Nefndin leggur til að umsækjandi beri fullan kostnað vegna þeirrar breytingar.
Nefndin leggur mikla áherslu á að útlit verði samræmt útliti hússins og öll smáhýsin verði eins. Ákvæði um slíkt verði sett í skilmála deiliskipulagsins.