Málsnúmer 2504054

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Rangárþings ytra - 37. fundur - 23.04.2025

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Hilmars Finns Binder, fyrir hönd OFCO ehf., kt. 461112-1960 um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki ll-tegund "h" á lóðinni Árbakki lóð 35, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 16.04.2025.

Byggðarráð gefur neikvæða umsögn þar sem óheimilt er að að starfrækja gistirekstur innan skipulagðra frístundasvæða í sveitarfélaginu nema heimild viðkomandi sumarhúsafélags liggi fyrir.

Samþykkt samhljóða.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 142. fundur - 30.04.2025

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Hilmars Finns Binder, fyrir hönd OFCO ehf., kt. 461112-1960 um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki ll-tegund "h" á lóðinni Árbakki lóð 35, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 16.04.2025.
Ekki er hægt að gefa jákvæða umsögn þar sem óheimilt er að starfrækja gistirekstur innan skipulagðra frístundasvæða í sveitarfélaginu


Til skýringar skal á það bent að í greinargerð aðalskipulags Rangárþings ytra 2016-2028, er gert ráð fyrir minni háttar starfsemi á frístundasvæðum, en svo segir í greinargerð undir liðnum Frístundabyggð? á bls. 11:

Innan frístundabyggðar er heimilt að vera með þjónustumiðstöðvar, smáverslanir og aðra starfsemi sem þjónar viðkomandi svæði. Heimilt er að vera með gistingu í flokki I og II skv. reglugerð nr. 1277/2016, (sbr. h lið 4. gr. ) enda hafi starfsemin tilskilin leyfi og lóðarhafar á frístundasvæðinu leggist ekki gegn starfseminni. Slík starfsemi skal vera í samræmi við reglugerð nr. 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, með síðari breytingum. Gera skal grein fyrir mögulegri atvinnustarfsemi í deiliskipulagi svæðis.


Jafnframt segir í sama kafla:

Lögð er áhersla á að á frístundasvæðum sé starfandi félag frístundahúsaeigenda. Gert er ráð fyrir slíkum félögum sbr. 17. gr. laga um frístundabyggð og leigu lóða undir frístundahús nr. 75/2008. Slík félög skulu m.a. meta heimildir og skyldur varðandi byggðina s.s. atvinnurekstur. Slíkur rekstur skal þó ávallt fylgja þeim lögum og reglum sem við á hverju sinni.?.


Af þessum sökum, þar sem viðkomandi lóð er á skilgreindu frístundasvæði skv. landnotkun í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028, getur byggingarfulltrúi ekki gefið jákvæða umsögn um gistirekstur innan frístundasvæða í Rangárþingi ytra fyrr en samþykktir í samræmi við ofangreindar forsendur liggja fyrir.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 40. fundur - 09.07.2025

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Hilmars Finns Binder, fyrir hönd OFCO ehf., kt. 461112-1960 um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki ll-tegund "h" á lóðinni Árbakki lóð 35, Rangárþingi ytra. Umsókn barst 16.04.2025.

Lagt er til að byggðarráð geri ekki athugasemd við beiðnina.

Samþykkt samhljóða.