Málsnúmer 2504078
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 142. fundur - 30.04.2025
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Vigdísar Þórarinsdóttur um leyfi til að byggja við og endurbæta núverandi íbúðarhús. Um er að ræða tveggja hæða íbúðarhús ásamt bílskúr með rislofti. Aðaluppdráttur frá Ásgeiri Ásgeirssyni dags. 28.4.2025.
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.