Málsnúmer 2602007

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Rangárþings ytra - 48. fundur - 29.04.2026

Trúnaðarmál
Haraldur Örn Reynisson, löggiltur endurskoðandi sveitarfélagsins, fór yfir ársreikning Rangárþings ytra fyrir árið 2025 í fjarfundi.

Byggðarráð samþykkir að vísa framlögðum ársreikningi Rangárþings ytra fyrir árið 2025, með undirritun sinni, til endurskoðunar og leggur fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 56. fundur - 29.04.2026

Fyrri umræða.
Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2025 er lagður fram til fyrri umræðu, tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

Lagt til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 57. fundur - 13.05.2026

Seinni umræða.
Haraldur Örn Reynisson, löggiltur endurskoðandi, fór yfir endurskoðunarskýrslu fyrir árið 2025 í fjarfundi í upphafi sveitarstjórnarfundar.

JGV og IPG tóku til máls.

Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2025 var staðfestur af byggðaráði miðvikudaginn 29.apríl 2026 og lagður fyrir sveitarstjórn. Hann var tekinn til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar miðvikudaginn 29. apríl 2026 og var vísað til seinni umræðu. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikning sveitarfélags á tveimur fundum í sveitarstjórn. Ársreikningurinn hefur að geyma samantekin reikningsskil fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A og B hluta starfsemi sveitarfélagsins sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Í A hluta er öll starfsemi sem að hluta, eða að öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita, Húsakynni bs, Rangárljós, Suðurlandsvegur 1-3 hf auk samstarfsverkefna í B hluta.

Rekstrartekjur A og B hluta á árinu námu 4.297 milljónum kr. Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 448 milljónir kr en í A hluta var rekstrarniðurstaðan jákvæð um 420 milljónir kr. Samtals eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2025 nam 4.268 milljónum kr.
Skuldaviðmið A og B hluta í árslok skv. reglugerð 500/2012 er 60% og skuldahlutfall er 90%.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða ársreikning Rangárþings ytra fyrir árið 2025.

Sveitarstjórn þakkar starfsfólki sveitarfélagsins fyrir góða vinnu við rekstur innan ramma fjárhagsáætlunar sem skilar sér í bættri afkomu.

Tekið stutt fundarhlé.

Bókun D-lista:
Við yfirferð á ársreikningi ársins 2025 er meginniðurstaðan sú að afkoma sveitarfélagsins er viðunandi. Rekstrarniðurstaða A-hluta er jákvæð um 419,9 m.kr. og sveitarfélagið skilar umtalsverðu svigrúmi inn í þær framkvæmdir sem nú standa yfir. Það er í samræmi við þá uppbyggingu og þann grunn sem lagður var á fyrra kjörtímabili þó framkvæmdir hafi dregist, og sveitarfélagið ræður við þær lántökur sem ráðist hefur verið í.
Tekjur sveitarfélagsins hafa aukist umtalsvert milli ára. Þar munar mestu um að framlög úr Jöfnunarsjóði hækkuðu úr 877,9 m.kr. árið 2024 í 1.078,8 m.kr. árið 2025, eða um 200,9 m.kr. og nokkuð umfram áætlanir.
Á sama tíma hafa rekstrargjöld sveitarfélagsins aukist töluvert. Rekstrargjöld A-hluta hækkuðu úr 3.125,6 m.kr. árið 2024 í 3.357,8 m.kr. árið 2025. Á kjörtímabilinu í heild fóru rekstrargjöld A-hluta úr 2.380,2 m.kr. árið 2022 í 3.357,8 m.kr. árið 2025. Að raunvirði jafngildir það um 19,6% hækkun.
Laun og launatengd gjöld hækkuðu umtalsvert. Þau fóru úr 1.719,7 m.kr. árið 2024 í 2.012,8 m.kr. árið 2025, eða um 293,1 m.kr. milli ára. Stöðugildum hélt áfram að fjölga á árinu.
Ársreikningurinn sýnir viðunandi stöðu í dag, en framlög jöfnunarsjóð höfðu hvað mest áhrif á afkomuna umfram upphaflega áætlun.
Þá kom fram að handbært fé frá rekstri í árslok hafi einungis verið 13 milljónir. Ljóst er að um leið og þeim stórframkvæmdum sem unnið er að verður lokið þarf að miða rekstur sveitarfélagsins við að handbært fé sé hærra til að rekstur og greiðslugeta sveitarfélagsins sé sjálfbær.
Þá ber að nefna að verði áframhald á þeirri útgjaldaþróun sem einkennt hefur kjörtímabilið eru blikur á lofti um sjálfbærni rekstrar sveitarfélagsins á næstu árum. (IPG, EÞI, BG)

Bókun Á-lista:
Ársreikningur vegna ársins 2025 sýnir bestu rekstrarafkomu frá upphafi og sýnir að fjárhagsstaðan er sterk og reksturinn í góðu lagi. Góð niðurstaða rekstursins endurspeglar markvissa stefnu og faglega fjármálastjórn. Okkar markmið á þessu kjörtímabili hefur verið að tekjur dugi fyrir gjöldum og rekstrarafgangur sé til staðar til þess að styðja við þær miklu framkvæmdir sem sveitarfélagið hefur staðið fyrir. Á- listinn horfir til næstu ára með ábyrgð og bjartsýni í farteskinu og vonast til að fjárhagslegur styrkur sveitarfélagsins nýtist öllum íbúum á raunverulegan hátt á næstu árum.(EVG, MHG, VMÞ og ÞDÞ)