Málsnúmer 2602030

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 169. fundur - 11.02.2026

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Hafliða Þ. Halldórssonar fyrir hönd Ármót ehf., kt. 420817-1770 um breytingu árekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki IV, tegund "B" stærra gistiheimili á lóðinni Ármót, L164471, rýmisnr. 020101 (300 m² gistihús), 12 gestir, 110101 (110 m² íbúð), 3 gestir, 170101 (40 m² gestahús), 3 gestir og 180101 (40 m² gestahús), 3 gestir. Hámarksfjöldi gesta fer úr 10 i 21 gest. Umsókn barst 09.02.2026.
Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði. Samkvæmt gildandi aðalskipulagi er heimild fyrir 20 gistiplássum á umræddri lóð (VÞ11).

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 46. fundur - 25.02.2026

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Hafliða Þ. Halldórssonar fyrir hönd Ármóta ehf., kt. 420817-1770 um breytingu á rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki IV, tegund "B" stærra gistiheimili á lóðinni Ármót, L164471, rýmisnr. 020101 (300 m² gistihús), 12 gestir, 110101 (110 m² íbúð), 3 gestir, 170101 (40 m² gestahús), 3 gestir og 180101 (40 m² gestahús), 3 gestir. Hámarksfjöldi gesta fer úr 10 i 21 gest. Umsókn barst 09.02.2026.

Lagt er til að byggðarráð geri ekki athugasemd við veitingu Rekstarleyfi til Ármóta ehf fyrir gistingu í flokki IV á tilgreindum gistihúsum í Ármótum.

Samþykkt samhljóða.