Málsnúmer 2603020

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 64. fundur - 09.04.2026

Eigandi lóðarinnar Hagi 2C, L240754, óskar eftir heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð sína. Áform eru uppi um að skilgreina byggingarreit og skipulag fyrir uppbyggingu íbúðarhúss til eigin nota, ásamt tilheyrandi aðkomu, bílastæðum og nauðsynlegum lögnum og innviðum.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins.