Skólastjóri fór yfir ýmis málefni úr starfi skólans. Skólastjóri sótti þing KÍ í Reykjavík þar sem ýmis mál voru rædd.Nemendur sem tóku þátt í Krakkabarokk s.l. vor komu fram á tónleikum í Hörpu í mars. Tónlistarskólinn átti tvö atriði á Nótunni sem haldin var í Salnum í Kópavogi í apríl. Nemendatónleikar voru í mars/apríl og vortónleikar verða 30. apríl. Haldin verður þemavika í maí. Skólaslit verða 19. maí. Þá vakti skólastjóri athygli á aðstöðu skólans til kennslu upp á Laugalandi sem mætti vera betri og stöðugri.
Stjórn telur að það þurfi að uppfæra lista yfir hljóðfæraeign skólans og felur skólastjóra að vinna málið áfram.
Stjórn telur að það þurfi að uppfæra lista yfir hljóðfæraeign skólans og felur skólastjóra að vinna málið áfram.