Málsnúmer 2605033

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 180. fundur - 20.05.2026

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna beiðni Hafsteins Jóhanns Hannessonar fyrir hönd Veiðifélags Landmannaafréttar um endurnýjun á leyfi fyrir gistingu í 16 húsum ásamt salernis- og sturtuhúsi í Veiðvötnum í Rangárþingi ytra. Beiðni barst 7.5.2026.
Embætti byggingarfulltrúa er ekki kunnugt um að gerðar hafi verið breytingar á umræddu húsnæði frá því sem skráð er í fasteignaskrá.

Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.