Málsnúmer 2605052

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 1. fundur - 04.06.2026

Land og skógur óskar eftir breytingu á stærð lóðarinnar Lækur 14 ? L193534 en lóðin er í dag skráð 5,4 ha. hjá HMS en yrði eftir breytingu á lóðarstærð 4,9 ha. Land það sem lóðin minnkar um fellur aftur til upprunajarðarinnar Reyðarvatns L164544. Merkjalýsing frá Páli Sigurðssyni dags. 18.5.2026.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við minnkun lóðarinnar. Nefndin telur ekki þörf á breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið þar sem ný afmörkun lóðar hefur engin áhrif á staðsetningu byggingareita eða byggingarmagn viðkomandi lóðar.