Málsnúmer 2609023
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 7. fundur - 07.10.2026
Gerð er breyting á aðalskipulagi Rangárþings ytra og snýr hún að húsagerðum og fjölda íbúða/ha í íbúðarbyggð í þéttbýlinu á Hellu. Íbúðarbyggð á Hellu samanstendur nánast eingöngu af einbýlis-, parog raðhúsum en eftirspurn er eftir íbúðum í litlum fjölbýlishúsum. Gerð er breyting á skilmálum fyrir íbúðarbyggð á Hellu og fyrir íbúðarbyggðina ÍB23 Öldur. Skipulagsuppdráttur breytist ekki.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010 og leggur til hún verði áður kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. sömu laga. Nefndin telur nægilegt að kynning tillögunnar fari fram á heimasíðu sveitarfélagsins þar sem tillagan varðar ekki hagsmunaaðila utan sveitarfélagsins.
Skipulagsnefnd - 9. fundur - 05.11.2026
Gerð er breyting á aðalskipulagi Rangárþings ytra og snýr hún að húsagerðum og fjölda íbúða/ha í íbúðarbyggð í þéttbýlinu á Hellu. Íbúðarbyggð á Hellu samanstendur nánast eingöngu af einbýlis-, par-og raðhúsum en eftirspurn er eftir minni íbúðum í fjölbýlishúsum. Gerð er breyting á skilmálum fyrir íbúðarbyggð á Hellu og fyrir íbúðarbyggðina ÍB23 Öldur.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi lýsingu og leggur til að hún verði send til umsagnar og kynnt skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.