Málsnúmer 2609024

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 6. fundur - 17.09.2026

Haukur Óskarsson fyrir hönd Húsvakurs ehf, lóðarhafa Rangárbakka 8A, 8B og 8C, óskar eftir að fá að sameina lóðirnar í eina lóð. Áform eru uppi um frekari uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu og það myndi einfalda verulega allt skipulag ef staðsetning bygginga yrði ekki lengur háð afmörkun lóða innbyrðis.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við að lóðirnar verði sameinaðar í eina lóð undir heitinu Rangárbakki 8 og leggur til við sveitarstjórn að það verði samþykkt. Samhliða verði afmörkuð og staðfest lóðin undir núverandi hreinsivirki sveitarfélagsins sem staðsett er á svæðinu. Lagt er til að lóðin Rangárbakki 8 verði afmörkuð að nýju að teknu tilliti til að aðgengi almennings meðfram ánni verði tryggt.