36. fundur 07. maí 2025 kl. 08:15 - 09:45 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir aðalmaður
  • Eggert Valur Guðmundsson formaður
  • Ingvar Pétur Guðbjörnsson aðalmaður
  • Ísleifur Jónasson aðalmaður
Starfsmenn
  • Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
  • Jón G. Valgeirsson
Fundargerð ritaði: Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri

1.Rekstraryfirlit Odda bs. 2025

Málsnúmer 2503077Vakta málsnúmer

Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri fór yfir rekstur byggðasamlagsins janúar-mars 2025.

2.Skólastjórar Odda bs. Stöðuyfirlit 2025.

Málsnúmer 2501053Vakta málsnúmer

Á fundinn mæta Sigrún Björk Benediktsdóttir leikskólastjóri á Laugalandi og Ingigerður Stefánsdóttir leikskólastjóri Heklukots og fara yfir stöðu mála í sínum skólum.

Stjórn þakkar skólastjórunum fyrir upplýsingarnar.

3.Skóladagtöl 2025-2026

Málsnúmer 2503079Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að skóladagatölum 2025-2026 fyrir skóla Odda bs.

Leikskólastjórar fóru yfir skóladagatöl leikskólanna. Skóladagatöl grunnskólanna lögð fram til kynningar.

4.Fræðsludagur 2025

Málsnúmer 2503017Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um að haldinn verði sameiginlegur fræðsludagur fyrir starfsfólk Odda bs og annað starfsfólk sveitarfélaganna föstudaginn 22. ágúst n.k. kl. 11:00. Lagt til að gera ráð fyrir hálfum starfsdegi í þetta verkefni.

Stjórn samþykkir tillöguna samhljóða.

5.Skólamál Meðferðarheimilisins Lækjarbakka

Málsnúmer 2504060Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá BOFS um að gera samning við Grunnskólann á Hellu um 1,5 stöðugildi kennara og aðstöðu í Helluskóla fyrir skjólstæðinga Meðferðarheimilisins Lækjarbakka í Gunnarsholti.

Stjórn Odda tekur jákvætt í erindið og felur framkvæmdastjóra í samstarfi við Grunnskólann á Hellu að ræða við BOFS um mögulegar útfærslur.

Samþykkt samhljóða.

6.Ráðning leikskólastjóra

Málsnúmer 2504061Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað frá Mögnum ráðgjöf vegna ráðningar leikskólastjóra á Laugalandi. Umsóknarfrestur rann út þann 30. apríl s.l. og sóttu tveir um starfið.

Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

7.Námsleyfasjóður gunnskóla. Úthlutun 2025

Málsnúmer 2504057Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:45.