1.Rekstraryfirlit Odda bs 2022
Málsnúmer 2201036Vakta málsnúmer
Rekstraryfirlit jan-des 2022.
Klara Viðarsdóttir, fjármálastjóri kynnti yfirlit fyrir árið 2022.
2.Grunnskólar Odda. Framtíðarsýn skólasamfélagsins
Málsnúmer 2301015Vakta málsnúmer
Samráðsfundur grunnskóla Odda bs. um framtíðarsýn skólasamfélagsins.
Á fundinn mæta Kristín Sigfúsdóttir skólastjóri grunnskólans á Hellu og Yngvi Karl Jónsson skólastjóri grunnskólans á Laugalandi og gera grein fyrir erindinu.
Stjórn telur rétt að leggja aukna áherslu á faglega umræðu milli stjórnar og skólastjórnenda.
Stjórn telur rétt að leggja aukna áherslu á faglega umræðu milli stjórnar og skólastjórnenda.
3.Tillaga D-listans um bætta samþættingu skóla-, íþrótta- og tómstundastarfs
Málsnúmer 2209037Vakta málsnúmer
Á fundinn mæta Kristín Sigfúsdóttir skólastjóri grunnskólans á Hellu og Yngvi Karl Jónsson skólastjóri grunnskólans á Laugalandi og gera grein fyrir þeim álitaefnum sem uppi eru varðandi málefnið. Skólarnir hafa skoðað ýmsar útfærslur sem hafa bæði kosti og galla og eru tilbúnir í viðræður hvernig best sé að þjónusta börn.
Stjórn þakkar fyrir góða yfirferð og telur að þörf sé á að rýna þetta mál betur og æskilegt að skipaður verði vinnuhópur um verkefnið.
Stjórn þakkar fyrir góða yfirferð og telur að þörf sé á að rýna þetta mál betur og æskilegt að skipaður verði vinnuhópur um verkefnið.
4.Tillaga D lista um samstarfssamning við Samtökin ´78
Málsnúmer 2301008Vakta málsnúmer
Tillaga um samstarfssamning við samtökin 78.
Skólastjórnendur grunnskólanna telja að fræðsla sem þessi geti nýst í skólastarfinu.
5.Uppsögn á þjónustusamningi - Sérdeild Suðurlands
Málsnúmer 2212067Vakta málsnúmer
Farið var yfir uppsögn á þjónustusamningi sem aðildarsveitarfélögin hafa haft við Sveitarfélagið Árborg um þjónustu í Sérdeild Suðurlands sem tekur gildi haustið 2023.
Lagt til að vísa málinu til stjórnar félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu til umfjöllunar.
Lagt til að vísa málinu til stjórnar félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu til umfjöllunar.
6.Starfsmannamál
7.Staða náms- og starfsráðgjafa - framtíðar fyrirkomulag
Málsnúmer 2210076Vakta málsnúmer
Auglýsing um sameiginlegan náms- og starfsráðgjafa
Lagt fram til kynningar.
8.Rekstrarkostnaður á heilsdagsígildi í leikskólum svfl 2021
Málsnúmer 2212065Vakta málsnúmer
Farið var yfir samantekt Sambands íslenskra sveitarfélaga um rekstarkostnað leikskóla á Íslandi fyrir árið 2021. Þar kemur fram að nettórekstarkostnaður án innri leigu á heildagsígildi í Leikskólanum Heklukoti er kr. 3.061.000 (brúttó 3.297.000) og Leikskólanum Lauglandi kr. 2.916.000 (brúttó 3.151.000).
Fundi slitið - kl. 10:15.