1.Brekkur Austurbær L165073. Landskipti. Brekkur dæluhús
Málsnúmer 2610053Vakta málsnúmer
Ný lóð er stofnuð úr jörðinni Brekkur 1 Austurbær, L165073. Lóðin fær heitið Lækjarbraut dæluhús, Lxxxxxx og er 56,0 m² að stærð. Merkjalýsing er frá Hörpu Birgisdóttur dags. 15.10.20026.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
Gunnar Aron víkur af fundi við meðferð og afgreiðslu málsins
2.Landmannaafréttur. Stofnun lóðar. Sigöldustöð-vinnubúðir.
Málsnúmer 2610055Vakta málsnúmer
Sigöldustöð-vinnubúðir er stofnuð úr þjóðlendunni Landmannaafrétti, L229508, og er 49,0 ha.
Landmannaafréttur er með skráða stærð 116011,7 ha í fasteignaskrá HMS en minnkar nú og verður 115962,7 ha.
Enginn matshluti er á lóðinni. Engin kvöð er á lóðinni.
Aðkoma er frá Fjallabaksleið nyrðri (208). Merkjalýsing frá Jóhönnu Sigurjónsdóttur dags. 30.9.2026.
Landmannaafréttur er með skráða stærð 116011,7 ha í fasteignaskrá HMS en minnkar nú og verður 115962,7 ha.
Enginn matshluti er á lóðinni. Engin kvöð er á lóðinni.
Aðkoma er frá Fjallabaksleið nyrðri (208). Merkjalýsing frá Jóhönnu Sigurjónsdóttur dags. 30.9.2026.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
Gunnar Aron kemur aftur inn á fundinn.
3.Árbæjarhellir land 3. Landskipti
Málsnúmer 2610058Vakta málsnúmer
Árbæjarhellir land 3 efra er stofnuð úr Árbæjarhelli landi 3, L198671. Ný lóð er 28,1 ha. Árbæjarhellir land 3, L198671, er með skráða stærð 89 ha í fasteignaskrá HMS og minnkar nú og verður 60,9 ha. Enginn matshluti er á lóðinni. Aðkoma að lóðinni er um sameiginlegan veg sem liggur upp með jörðunum Kvistum, L165112 og Árbæjarhelli landi 2, L198670 skv. þingl. landskiptagerð. Merkjalýsing frá Jóhönnu Sigurjónsdóttur dags. 9.10.2026.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
4.Jarlsstaðir. Landskipti. Hof
Málsnúmer 2610072Vakta málsnúmer
Landeigandi óskar eftir samþykki vegna stofnunar nýrrar landeignar úr Jarlsstöðum L205460. Ný landeign fær staðfangið Hof. Á Hofi verða eftirtalin mannvirki:
Mhl. 010101, einbýli, byggt 2013, stærð 147,9m².
Mhl. 020101, bílskúr, byggingarár ókunnugt, stærð 60,9m².
Aðkoma er um aðkomuveg Jarlsstaða.
Ný lóð samanstendur af fjórum hlutum. Sá stærsti er á landi en svo eru þrír hólmar. Fyrir breytingu eru Jarlsstaðir skráðir 3173000 m2 eða 317 ha. Eftir breytingu verður jörðin 2378656,5 m2 eða 237 ha. Merkjalýsing frá Adam Hofritz, dags. 17.12.2025.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Áður en framkvæmdir hefjast skal uppfæra gildandi deiliskipulag til samræmis við breytta afmörkun lóða.
Eggert Valur víkur af fundi við meðferð og afgreiðslu málsins
5.Lyngás. Landskipti 8 lóðir
Málsnúmer 2610073Vakta málsnúmer
landeigandi óskar eftir samþykki fyrir stofnun átta nýrra lóða úr landi Lyngáss 1 L165113, F2197260. Allar lóðir eru skilgreindar í gildandi deiliskipulagi. Einnig er lögð fram hnitsett afmörkun fyrir Lyngás 2 L165116, F2197271, Lyngás 1B L165114 og Lyngás 1 L165113 og breyting er gerð á Lyngási 6 L211830, F2300075. Merkjalýsing frá Adam Hofritz dags. 16.9.2026.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti og leggur til að landskiptin verði samþykkt.
Eggert Valur kemur aftur inn á fundinn.
6.Rangárflatir 4 og 6. Sameining lóða.
Málsnúmer 2609027Vakta málsnúmer
Lóðarhafi Rangárflata 4 og Rangárflata 6 óskar eftir að fá að sameina lóðirnar í eina lóð. Lóðin héldi heitinu Rangárflatir 4 og verði 49.764,8 m² að stærð. Áform eru uppi um frekari uppbyggingu í tengslum við rekstur hótelsins á svæðinu. Afgreiðslu var frestað á síðasta fundi og óskað eftir framkvæmdaáætlun.
Skipulagsnefnd hefur móttekið umbeðna framkvæmdaáætlun og leggur til að henni verði gerð skil í væntanlegum lóðarleigusamningi. Nefndin leggur til að sameining lóðanna verði samþykkt og samhliða verði deiliskipulag uppfært. Nefndin leggur til að væntanlegur lóðarleigusamningur verði lagður fyrir sveitarstjórn til samþykktar.
7.Merkurnáma. Umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku
Málsnúmer 2610056Vakta málsnúmer
Heiðarlönd ehf sækir um framkvæmdaleyfi fyrir áframhaldandi efnistöku á núverandi efnistökusvæði E57 í Merkurhrauni og stækkun þess í samræmi við gildandi aðalskipulagsbreytingu. Óskað er eftir heimild til efnistöku til allt að 235.000 m³. Umsókn og greinargerð frá Eflu dags. 6.10.20206.
Skipulagsnefnd hefur farið yfir greinargerð og áætlun umsækjanda. Nefndin gerir engar athugasemdir við fyrirliggjandi gögn og leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi að teknu tilliti til 5. greinar reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
8.Helluvað 3 lóð (L164514) - Umsókn um byggingarheimild - Flokkur 1
Málsnúmer 2610017Vakta málsnúmer
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Kjartans Sigurbjartssonar hjá Pro-Ark, fh. Reynis Guðnasonar, um byggingarheimild til byggingar tveggja gestahúsa úr timbri, hvort um sig 17,8 m² að stærð, samkvæmt aðaluppdráttum Pro-Ark, dags. 14.9.2026. Erindinu vísað til skipulagsnefndar þar sem ekki er í gildi deiliskipulag fyrir lóðina.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áform umsækjanda en telur nauðsynlegt að gerðar verði breytingar á landnotkun lóðarinnar í aðalskipulagi og leggur til við sveitarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga í þá vinnu. Nefndin telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem breytingin felur ekki í sér breytingar á formi eða útliti lóðarinnar. Nefndin leggur til að umsækjanda verði gert að leggja fram tillögu að deiliskipulagi
9.Svínhagi, Fitjahraun 9, Breyting á deiliskipulagi.
Málsnúmer 2610054Vakta málsnúmer
Deiliskipulag frístundabyggðar í landi Svínhaga var fyrst staðfest í nóvember 2013. Með breytingu á deiliskipulaginu dags. í janúar 2015, voru lóðirnar Höfðahraun 1 og Fuitjahraun 9 sameinaðar í eina lóð, Fitjahraun 9. Eigandi óskar eftir að gerð verði breyting á deiliskipulagi þar sem líðinni Fitjahraun 9 verði aftur skipt í tvær lóðir, eins og var fyrir breytinguna 2015. Lóðirnar fengju sama heiti og áður, Höfðahraun 1 og Fitjahraun 9. Aðrir skilmálar haldast óbreyttir.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu og telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem tillagan felur einungis í sér skiptingu lóðar í sama horf og var. Nefndin telur ekki þörf á grenndarkynningu þar sem um sama byggingarmagn er að ræða og aðrir skilmálar gildandi deiliskipulags eru óbreyttir. Nefndin leggur því til að meðferð verði í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu. Nefndin telur rétt að sérskilmálar frá 2014 verði felldir úr skipulagi samhliða þessum breytingum.
10.Svínhagi L7A. Krafa um endurupptöku og ógildingar stjórnvaldsákvarðana.
Málsnúmer 2607015Vakta málsnúmer
Lagt er fram erindi frá eigendum Svínhaga SH 21 og SH 18 (landnúmer 220234 og 218365), dags. 3. júlí 2026, ásamt ítrekun og viðbótarkröfum, dags. 19. október 2026, og verðmati fasteignasala, dags. 15. október 2026.
Í erindunum er gerð krafa um:
1.
Að samþykkt aðaluppdrátta (dags. 27. nóvember 2023 og 14. mars 2024), útgáfa byggingarleyfa og lokaúttekt (dags. 27. janúar 2025) vegna mannvirkja á L7A verði tekin til meðferðar á ný og felld úr gildi á grundvelli 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, eða til vara á grundvelli ólögfestra meginreglna stjórnsýsluréttarins um afturköllun og leiðréttingu á löglausri stjórnsýslu.
2.
Að öllum áformum um breytingar á aðalskipulagi á L7 og L8A verði tafarlaust hætt í ljósi umsagnar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) dags. 1. október 2026, eða til vara að byggingaráform verði færð fjær hraunjaðri.
3.
Að sveitarfélagið greiði kr. 25.000.000 í skaðabætur vegna verðrýrnunar fasteignar, með vísan til 51. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og almennra skaðabótareglna, auk vaxta, eða til vara að sveitarfélagið viðurkenni bótaskyldu og dómkveðji matsmann á sinn eigin kostnað skv. 2. mgr. 51. gr. a skipulagslaga.

Skipulagsnefnd hefur fjallað um framlögð gögn málsins og leggur til eftirfarandi afgreiðslu:
1. Varðandi kröfu um endurupptöku og ógildingu ákvarðana vegna Svínhaga L7A: Skipulagsnefnd telur ekki uppfyllt lagaskilyrði til að fallast á endurupptöku samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Réttur til að krefjast endurupptöku samkvæmt 1. mgr. 24. gr. laganna er bundinn við aðila máls, en nágrannar teljast almennt ekki aðilar að stjórnsýslumáli um útgáfu byggingarleyfis á annarri fasteign í skilningi ákvæðisins. Jafnframt er liðið meira en eitt ár frá samþykkt aðaluppdrátta og útgáfu byggingarleyfa, sbr. 2. mgr. 24. gr. laganna, og liggja ekki fyrir þær veigamiklu ástæður sem réttlæta frávik frá þeim fresti, auk þess sem skilyrði 1. tölul. 1. mgr. 24. gr. um að ákvarðanir hafi byggst á röngum eða ófullnægjandi upplýsingum um málsatvik teljast ekki uppfyllt.
Nefndin telur jafnframt ekki lagagrundvöll til að taka málið upp að nýju eða afturkalla ákvarðanirnar á grundvelli óskráðra meginreglna stjórnsýsluréttarins. Líkt og áður greinir skortir bréfritara lögvarða aðild að ákvörðun um útgáfu leyfanna auk þess sem allir lögmæltir kæru- og endurupptökufrestir eru löngu liðnir. Liggur fyrir að deiliskipulag svæðisins hefur tekið formlegt gildi að aflokinni lögboðinni kynningu og mannvirkið samræmist því skipulagi í einu og öllu. Með vísan til réttaröryggis, meðalhófs og þeirrar staðreyndar að efnislegt samræmi ríkir milli mannvirkisins og gildandi skipulags verður ekki talið tækt að fella ákvarðanirnar úr gildi eða afturkalla þær. Kröfu um endurupptöku og ógildingu ákvarðana vegna L7A er því hafnað.
2. Varðandi kröfu um stöðvun skipulagsáforma á L7 og L8A: Fyrirhugaðar breytingar á aðalskipulagi er varða lóðir L7 og L8A eru í formlegu lögboðnu skipulagsferli samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010. Athugasemdir bréfritara og umsögn HMS dags. 1. október 2026 eru til meðferðar innan þess skipulagsferlis og verða teknar til efnislegrar skoðunar við frekari vinnslu og afgreiðslu tillögunnar í samræmi við lög. Nefndin hafnar því kröfu um að fallið verði frá skipulagsgerðinni með fyrirframákvörðun í tengslum við afgreiðslu á erindi þessu.
3. Varðandi skaðabótakröfu og kröfu um dómkvaðningu matsmanns: Skipulagsnefnd hafnar framkominni skaðabótakröfu að svo stöddu fyrir sitt leyti. Afstaða til fjárkrafna og málsmeðferð skaðabótamála á hendur sveitarfélaginu fellur undir valdsvið sveitarstjórnar, og er kröfunni því jafnframt vísað til sveitarstjórnar til formlegrar meðferðar. Þá bendir nefndin á að bótakröfu samkvæmt 51. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 ber að lýsa skriflega innan eins árs frá gildistöku skipulags, sbr. 3. mgr. þeirrar greinar. Enn fremur er kröfu um að sveitarfélagið standi straum af kostnaði við dómkvaðningu matsmanna samkvæmt 2. mgr. 51. gr. a skipulagslaga hafnað, enda felur ákvæðið í sér heimild en ekki skyldu sveitarfélags.
Afgreiðsla og kæruleiðbeiningar: Skipulagsfulltrúa er falið að kynna bréfriturum og eiganda Svínhaga L7A afgreiðslu þessa. Bent er á að ákvörðun um höfnun á endurupptöku byggingarleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála samkvæmt lögum nr. 130/2011, og er kærufrestur einn mánuður frá því að aðila varð kunnugt um ákvörðunina. Afgreiðsla á erindi um að stöðva yfirstandandi skipulagsmeðferð telst hins vegar ekki lokaákvörðun í skilningi 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og er því ekki sjálfstætt kæranleg til nefndarinnar.

11.Snjallsteinshöfði 1C ofl. Deiliskipulag
Málsnúmer 1905006Vakta málsnúmer
Landeigendur þriggja spildna úr landi Snjallsteinshöfða, Ásholt, Ytrivöllur og Stekkatún, hafa lagt fram deiliskipulag af svæðum sínum. Gert verði ráð fyrir þremur byggingareitum á hverri lóð fyrir íbúðarhús, geymslu og gestahúsum. Tillagan var endurauglýst vegna tímaákvæða í reglugerð frá og með 27.8.2026 til og með 14.10.2026. Allar umsagnir má skoða undir máli nr. 1008/2026 í skipulagsgáttinni. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
12.Borgir. Breyting á deiliskipulagi.
Málsnúmer 2610057Vakta málsnúmer
Landeigandi óskar eftir að fá að leggja fram tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Borgir frá jamúar 2021 þar sem byggingareitur verður stækkaður og aðlagaður að byggingu skemmu. Skipulagsgögn frá Eflu dags. 16.10.2026.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu og telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem tillagan felur einungis í sér stækkun núverandi byggingareits. Nefndin telur ekki þörf á frekari grenndarkynningu en fram fór við kynningu á byggingaráformum umsækjanda. Í þeirri kynningu kom fram í umsögn Rarik að áður en framkvæmdir hefjast skal framkvæmdaaðili sóna svæðið til að staðsetja rafstreng sem virðist liggja í um 6 metra fjarlægð frá fyrirhugaðri byggingu. Nefndin leggur því til að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu.
13.Hvammur L165091. Deiliskipulag.
Málsnúmer 2603096Vakta málsnúmer
Eigendur óska eftir heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir jörð sína, Hvamm L165091. Afmarkaðir verða tveir byggingareitir þar sem heimilt verði annars vegar að byggja fjóra 60 m² gistiskála til útleigu auk, aðstöðuhúss og 100 m² starfsmannahúss og hins vegar 2400 m² reitur geymsluhúsnæði. Einnig verður afmörkuð og stofnuð ný lóð innan jarðarinnar fyrir núverandi geymsluhúsnæði. Athugasemd var gerð af hálfu skipulagsstofnunar eftir auglýsingu vegna ósamræmis við ákvæði í aðalskipulagi. Lögð er fram uppfærð tillaga frá Larsen ehf.
Skipulagsnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
14.Hellarnir við Hellu. Breyting á deiliskipulagi.
Málsnúmer 2606068Vakta málsnúmer
Lögð er fram endurbætt tillaga frá síðasta fundi þar sem búið er að skilgreina umferðarflæði inn og út af svæðinu, auk uppfærslu á skilmálatöflu fyrir lóðir.
Skipulagsnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
15.Hverfisskipulag
Málsnúmer 2311053Vakta málsnúmer
Kynnt hefur verið lýsing skipulagsáforma vegna vinnu við hverfisskipulag fyrir elsta bæjarhluta Hellu. Um er að ræða svæði sem afmarkast af Leikskálum til suðurs, Ytri-Rangá til vesturs, lóðum við Ártún og Nestún til norðurs og lóðum við Hólavang til austurs. Hverfisskipulagið nær til elsta bæjarhluta Hellu en innan skipulagssvæðisins eru um 42 lóðir og eru flestar þeirra nú þegar byggðar. Lögð er fram tillaga og greinargerð ásamt húsakönnun.
Farið var yfir áherslur varðandi byggðamynstur og lóðamál.
16.Vikurnám Merkihvolsland. MÁÚ
Málsnúmer 2509071Vakta málsnúmer
Unnið er að mati á umhverfisáhrifum vegna efnistöku á vikri austan Búrfells. Tveir valkostir verða bornir saman í umhverfismatsskýrslu. Aðalvalkostur felur í sér að svæði austan og vestan Landvegar verði fullunnið. Valkostur 2 felur í sér aðgengilegt efni austan Landvegar verði fullnýtt en einungis verði hluti svæðisins nýttur vestan vegar. Þá verða umhverfisáhrif einnig borin saman við núllkost en sá kostur felur í sér að efni austan Landvegar verðir fullunnið og efnistöku svo hætt. Lögð er fram tillaga að umhverfismatsskýrslu.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 10:46.