1.Rekstraryfirlit 2025 S1-3 hf
2503061
Rekstraryfirlit jan-okt 2025 til kynningar.
Framkvæmdastjóri fór yfir rekstraryfirlit janúar til október 2025.
2.Fjárhagsáætlun 2026 - Suðurlandsvegur 1-3 hf
2511124
Fjárhagsáætlun 2026 til samþykktar
Fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 lögð fram til samþykktar. Gert er ráð fyrir svipuðum rekstri og undanfarin ár.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
3.Umsjón fasteigna
2511127
Umfjöllun um breytingar á umsjón fasteigna.
Starfsmaður sem haft hefur umsjón með fasteignum undanfarin ár lætur af störfum um áramót. Ekki verður ráðinn starfsmaður í hans stað en framkvæmdastjóra falið að semja við þjónustumiðstöð Rangárþings ytra að sinna umsjón fasteignanna.
Samþykkt samhljóða
Samþykkt samhljóða
4.Málefni leigurýma á Suðurlandsvegi 1-3
2206063
Farið yfir stöðu leigurýma.
Eitt leigurými á annari hæð er laust eins og er. Það verður auglýst á næstu dögum.
Pósturinn óskaði eftir að fá að stækka pósthólfin framan við húsið og jafnframt verður gerður samningur um aðstöðuna.
Pósturinn óskaði eftir að fá að stækka pósthólfin framan við húsið og jafnframt verður gerður samningur um aðstöðuna.
5.Framkvæmdir Suðurlandsvegur 1-3
2206064
Farið yfir stöðuna á viðhaldi á fasteignum.
Áfram hefur verið unnið að endurnýjun á lýsingu í sameign og eftirlitsmyndavélum var fjölgað og þær endurnýjaðar. Auk annars minniháttar viðhalds.
Fundi slitið - kl. 09:00.