30. fundur 27. apríl 2026 kl. 13:00 - 14:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Eggert Valur Guðmundsson formaður
  • Viðar Steinarsson aðalmaður
  • Björk Grétarsdóttir aðalmaður
  • Guðrún Elín Pálsdóttir aðalmaður
  • Þröstur Sigurðsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Klara Viðarsdóttir embættismaður
  • Jón G. Valgeirsson
Fundargerð ritaði: Klara Viðardóttir framkvæmdastjóri

1.Rekstraryfirlit 2026 S1-3 hf

2604058

Yfirlit yfir rekstur jan-mars 2026
Framkvæmdastjóri fór yfir rekstur jan-mars 2026. Reksturinn er í ágætu samræmi við áætlun eftir fyrstu 3 mánuði ársins.

2.Ársreikningur 2025 - S1-3 hf

2604059

Ársreikningur 2025 lagður fram til samþykktar.
Ársreikningur 2025 lagður fram til samþykktar. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði er jákvæð um um 9 milljónir kr. en tap ársins eftir fjármagnsliði eru 19,3 milljónir kr.
Veltufé frá rekstri var jákvætt um 12,2 milljónir kr. Eigið fé í árslok var 276,1 milljón kr.

Ársreikningur 2025 samþykktur samhljóða.

3.Aðalfundur - Suðurlandsvegur 1-3 hf 2026

2604060

Tímasetning og boðun aðalfundar 2026.
Tillaga um að aðalfundur félagsins fari fram 22. júní 2026 kl. 13:00
Framkvæmdastjóra falið að boða til fundar.

Samþykkt samhljóða.

4.Umsjón fasteigna

2511127

Ráðning starfsmanns.
Tillaga um að ráða Pawel Przewlocki í 100% starf í umsjón fasteigna og ræstingu til reynslu í 4 mánuði.

Samþykkt samhljóða.

5.Málefni leigurýma á Suðurlandsvegi 1-3

2206063

Farið yfir stöðu leigurýma. Nýr leigusamningur við Tannlæknaþjónustuna.
Tannlæknaþjónustan er að bæta við sig rými á Suðurlandsvegi 3. Nýr leigusamnngur gerður frá 1.5.2026.

Til kynningar.

6.Aðgengismál

2604061

Rafrænt aðgengi að salernum.
Framkvæmdastjóra og stjórnarformanni falið að athuga með rafrænar lausnir fyrir gjaldtöku á salernum.

7.Framkvæmdir Suðurlandsvegur 1-3

2206064

Staða á viðhaldi fasteigna.
Farið yfir helstu atriði í viðhaldi hússins.

Fundi slitið - kl. 14:00.