Einnig sat fundinn Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri undir liðum 1-2.
1.Rekstraryfirlit Vatnsveitu 13052020
Málsnúmer 2005019Vakta málsnúmer
Rekstur jan-apríl
Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri Rangárþings ytra kynnti rekstraryfirlit vatnsveitunnar fyrir janúar til apríl 2020. Rekstur er í jafnvægi.
2.Ársreikningur Vatnsveitu 2019
Málsnúmer 2005015Vakta málsnúmer
Ársreikningur til samþykktar.
Kynntur var endurskoðaður ársreikningur Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs. fyrir árið 2019. Rekstrarniðurstaða veitunnar var jákvæð um 25 mkr. Fjárfesting ársins var 54 mkr.
Ársreikningur 2019 var borinn undir atkvæði. Hann var samþykktur samhljóða og áritaður rafrænt af stjórnarmönnum.
Ársreikningur 2019 var borinn undir atkvæði. Hann var samþykktur samhljóða og áritaður rafrænt af stjórnarmönnum.
3.Lántaka Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps vegna framkvæmda
Málsnúmer 1901011Vakta málsnúmer
Ósk um ábyrgð eigenda vegna lántöku.
Stjórn vatnsveitunnar óskar eftir því við aðildarsveitarfélög að þau ábyrgist lántöku Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs að upphæð 110 mkr, hjá Lánasjóði sveitarfélaga, í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun byggðasamlagsins fyrir árið 2020. Um er að ræða fjármögnun á framkvæmdum við stækkun Lækjarbotnaveitu.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
4.Stækkun Lækjarbotnaveitu
Málsnúmer 1908007Vakta málsnúmer
Verkfundargerð 5.
Fundargerðin lögð fram til kynningar. Veitustjóri upplýsti að framkvæmdir eru komnar á góðan skrið og ganga vel.
5.Yfirlit frá veitustjóra
Málsnúmer 2005018Vakta málsnúmer
Staða mála.
Guðni G. Kristinsson veitustjóri fór yfir nokkur atriði úr rekstri veitunnar og kynnti stöðu helstu viðfangsefna.
Fundargerð yfirlesin og samþykkt með rafrænum hætti.
Fundi slitið - kl. 16:50.