Einstaklingar 18 ára og yngri sem búsettir eru í Rangárþingi ytra geta sótt um styrk vegna æfinga- og keppnisferða erlendis. Styrkir þessir eiga við þegar viðkomandi ungmenni þarf sjálft að bera hluta eða allan kostnað vegna ferðarinnar.
Tvenns konar styrkir eru í boði:
  • Æfinga- og keppnisferðir með félagsliði og æfingaferðir með landsliði - kr. 45.000
  • Keppnisferðir með landsliði á opinber mót landsliða, s.s. riðlakeppnir og lokamót - kr. 70.000
Sveitarstjóri hefur heimild til að meta umsóknir og afgreiða styrki samkvæmt þessum reglum í samræmi við heimildir samþykktrar fjárhagsáætlunar. Styrkur verður aldrei greiddur nema með staðfestingu á þátttöku viðkomandi í ferðinni, s.s. með framlagningu farseðla og kostnaðarreikninga.