6.gr. reglna um úthlutun styrkja úr Menningarsjóði Rangárþings ytra
Gerður skal samningur milli styrkþega og Rangárþings ytra um sérhverja styrkveitingu. Styrkþegi skal skila upplýsingum um framkvæmd verkefnisins á þar til gert eyðublað, í síðasta lagi þremur mánuðum eftir að styrktu verkefni lýkur, eigi síðar en ári eftir að samningur um verkefnið var undirritaður. 2/3 hlutarstyrkupphæðarinnar er greiddur út þegar skrifað hefur verið undir samning og 1/3 hluti er greiddur út við skil á lokaskýrslu. Hafi umsækjandi áður hlotið styrk verður ný umsókn ekki tekin til greina nema viðkomandi hafi skilað inn eyðublaði um framkvæmd.

captcha
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?