Formaður lagði til að við bættust liðir 1. Fjallskilanefnd Rangárvallaafréttar - fundargerð, liður 6. Langalda 28 - umsókn um lóð og 10. Heiðarbrún II - umsókn um lögbýli og var það samþykkt samhljóða. Aðrir liðir færast til í samræmi.
1.Fjallskilanefnd Rangárvallaafréttar 22062021
2.Rekstraryfirlit sveitarfélagsins 2021
Málsnúmer 2101039Vakta málsnúmer
Yfirlit um rekstur janúar-maí
Lagt fram yfirlit um rekstur sveitarfélagsins.
3.Land úr Gaddstöðum - kauptilboð
Málsnúmer 2103058Vakta málsnúmer
Sala á 5 ha lands úr Gaddstöðum.
Lagt er til að byggðarráð samþykki að selja Bergþóru Jósepsdóttur og Haraldi Magnússyni 5 ha spildu úr leigulandi sínu á Gaddstöðum skv. meðfylgjandi uppdrætti á sömu kjörum og leigjendum frístundalóða í Gaddstaðalandi hefur staðið til boða undanfarin ár.
Samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að ganga frá kaupsamningi.
Samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að ganga frá kaupsamningi.
4.Fasteignamat 2022
Málsnúmer 2106044Vakta málsnúmer
Ályktun stjórnar Félags atvinnurekenda vegna fasteignamats 2022
Lagt fram til kynningar og ályktuninni vísað til umræðu við undirbúning fjárhagsáætlunar næsta árs.
5.Hugmyndagáttin og ábendingar 2021
Málsnúmer 2101011Vakta málsnúmer
Ábending um útiborð
Ábendingunni vísað til þjónustumiðstöðvar til úrvinnslu.
6.Langalda 28. Umsókn um lóð
Málsnúmer 2106061Vakta málsnúmer
Guðjón Gestsson óskar eftir að fá úthlutaðri lóðinni nr. 28 við Langöldu til að byggja á henni einbýlihsús úr timbri sbr. umsókn dags. 23.6.2021
Lagt er til að byggðarráð úthluti Guðjóni Gestssyni lóðinni að Langödu 28 til að byggja á henni einbýlishús úr timbri.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
7.Áningarhólf að fjallabaki - beiðni um umsögn
Málsnúmer 2106054Vakta málsnúmer
Hestamannafélagið Geysir óskar eftir umsögn
Lagt er til að byggðarráð mæli með þeirri fyrirætlan reiðveganefndar hestamannafélagsins Geysis að halda áfram því verkefni að lagfæra og koma upp áningahólfum að Fjallabaki með áherslu á Dómadalsleið í ár skv. meðfylgjandi áætlun þar um.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
8.Uppgræðsla í landi Reynifells og Þorleifsstaða
Málsnúmer 2012004Vakta málsnúmer
Fulltrúar Landgræðslunnar, Anna Sigríður Valdimarsdóttir, héraðsfulltrúi og Birkir Snær Fannarsson, lögfræðingur áttu fund með fulltrúum Rangárþings ytra, Ágústi Sigurðssyni, sveitarstjóra og Haraldi Birgi Haraldssyni, skipulags- og byggingarfulltrúa, um möguleika á samvinnu um uppgræðsluverkefni á eyðijörðunum Reynifelli og Þorleifsstöðum í Rangárþingi ytra. Meðfylgjandi er umsókn Landgræðslunnar um framkvæmdaleyfi fyrir uppgræðslu í landi Reynifells og Þorleifsstaða.
Lagt er til að byggðarráð Rangárþings ytra samþykki fyrir sitt leyti framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðrar uppgræðslu Landgræðslunnar á áfoksgeirum í landi Reynifells og Þorleifsstaða í Rangárþingi ytra.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
9.Hótel VOS. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis
Málsnúmer 2106052Vakta málsnúmer
Egill Benediktsson fyrir hönd sýslumannsins á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Gyðu Árnýjar Helgadóttur fyrir hönd Norður Nýjabæjar ehf um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "B" á gististað, Hótel Vos, Rangárþingi ytra.
Lagt er til að byggðarráð geri ekki athugasemdir við veitingu rekstrarleyfis til Norður Nýjabæjar ehf fyrir gistingu í flokki II, tegund "B" á gististað Hótel Vos í Rangárþingi ytra.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
10.Heiðarbrún II - umsókn um lögbýli
Málsnúmer 2106064Vakta málsnúmer
Óskað umsagnar vegna stofnunar lögbýlis.
Lagt er til að byggðarráð geri ekki athugasemd við stofnun lögbýlis á Heiðarbrún II, L220265.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
11.Samband Ísl. Sveitarfélaga - 898 fundur
Málsnúmer 2106045Vakta málsnúmer
Til kynningar.
12.Samband Ísl. Sveitarfélaga - 899 fundur
13.HES - stjórnarfundur 211
14.HES - stjórnarfundur 212
Málsnúmer 2106050Vakta málsnúmer
Til kynningar.
15.SASS - 569 stjórn
16.SASS - 570 stjórn
17.Fundarboð félagsfundur 27062021- Veiðifélag Ytri-Rangár
Málsnúmer 2106033Vakta málsnúmer
Til kynningar.
18.EFS - aðalfundur 2021
19.Breytingar á jarðalögum 2021
20.Jafningjafræðsla Suðurlands
Málsnúmer 2106043Vakta málsnúmer
Skýrsla um starfsemina
Til kynningar. Fram kom að áætlað er að jafningjafræðslan heimsæki vinnuskóla Rangárþings ytra í sumar líkt og fyrrasumar.
Fundargerðin yfirlesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 17:20.