Málsnúmer 2103058
Vakta málsnúmerByggðarráð Rangárþings ytra - 33. fundur - 25.03.2021
Erindi frá Bergþóru Björgu Jósepsdóttur og Haraldi Magnússyni.
Lagt fram bréf frá Bergþóru Björg Jósepsdóttur og Haraldi Magnússyni með ósk um að fá að kaupa leiguland sitt úr Gaddstöðum austan afleggjara að Gunnarsholti. Landið er á óskipulögðu svæði. Sveitarstjóra falið að afla nánari upplýsinga um stærð landsins og erindinu vísað áfram til sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 34. fundur - 12.05.2021
Til afgreiðslu
Bergþóra Björg Jósepsdóttir og Haraldur Magnússon hafa óskað eftir því að kaupa leiguland sitt úr Gaddstöðum. Landið er talið vera tæpir 40 ha og er á óskipulögðu svæði.
Lagt er til að bjóða leigjendum að kaupa allt að 5 ha spildu á sambærilegum kjörum og leigjendum frístundalóða í Gaddstaðalandi hefur staðið til boða undanfarin ár. Sveitarstjóra verði falið að funda með leigjendum og eftir atvikum leggja fram útfært kauptilboð á næsta fundi byggðarráðs.
Samþykkt með 4 atkvæðum (BG,HE,HT,ÁS, 3 sitja hjá (MHG,ST,YH).
Bókun Á-lista:
Fulltrúar Á-lista sitja hjá þar sem upplýsingar um málið eru ekki nægar til að taka afstöðu til þess. Ekki er tilgreint hvaða land er til sölu og eins er söluvirði ekki tilgreint.
Margrét Harpa Guðsteinsdóttir
Steindór Tómasson
Yngvi Harðarson

Byggðarráð Rangárþings ytra - 37. fundur - 24.06.2021
Sala á 5 ha lands úr Gaddstöðum.
Lagt er til að byggðarráð samþykki að selja Bergþóru Jósepsdóttur og Haraldi Magnússyni 5 ha spildu úr leigulandi sínu á Gaddstöðum skv. meðfylgjandi uppdrætti á sömu kjörum og leigjendum frístundalóða í Gaddstaðalandi hefur staðið til boða undanfarin ár.
Samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að ganga frá kaupsamningi.
Samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að ganga frá kaupsamningi.