6. fundur 16. nóvember 2026 kl. 10:00 - 11:15 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Eggert Valur Guðmundsson formaður
  • Ingvar Pétur Guðbjörnsson aðalmaður
  • Ísleifur Jónasson aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðmundur Einarsson
  • Tómas Haukur Tómasson
  • Klara Viðarsdóttir
  • Eiríkur Vilhelm Sigurðarson
Fundargerð ritaði: Eiríkur Vilhelm Sigurðarson sveitarstjóri

1.Framtíðarsýn viðhalds og endurbóta

Málsnúmer 2604066Vakta málsnúmer

Farið yfir fyrirliggjandi framkvæmdaáætlun fyrir húsnæði á Laugalandi.

Á árinu 2027 er á áætlun að ljúka frágangi við þær framkvæmdir sem þegar voru hafnar á leikskólanum, sem og sundlaug og íþróttahúsi, klára frágang í stofum E og F í grunnskóla, skipta út gluggum á elstu skólabyggingunni og fara í gluggaskipti og klæðningu á skólastjórahúsi.

Húsrýmisáætlun verður endurskoðuð og hönnun hafin á útisvæðum.

Tímasettar áætlanir verða lagðar fram á næsta fundi Húsakynna.

Samþykkt samhljóða.

2.Fjárhagsáætlun 2027

Málsnúmer 2611073Vakta málsnúmer

Lögð fram fjárhagsáætlun Húsakynna fyrir árið 2027.
Fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 lögð fram til umræðu og samþykktar.
Rekstraráætlun gerir ráð fyrir að rekstrarkostnaður verði um það bil 32 m.kr og fjárfesting sé 52 m.kr. Kostnaði er mætt með framlögum sveitarfélaganna og leigutekjum.

Samþykkt samhljóða.
Næsti fundur er áætlaður mánudaginn 25. janúar.

Fundi slitið - kl. 11:15.