Málsnúmer 2604066

Vakta málsnúmer

Húsakynni bs - 14. fundur - 24.04.2026

Lögð fram áætlun um framkvæmdir við húsnæði skóla, leikskóla og íþróttahúss á Laugandi. Staða hönnunar og framkvæmda.
Tómas fór yfir stöðu framkvæmda og kostnaðaráætlun vegna framkvæmda á Laugalandi í sumar.

Húsakynni bs - 1. fundur - 01.07.2026

Staða framkvæmda og tímaáætlun við húsnæðið á Laugalandi.
Fundarmenn skoðuðu framkvæmdir og fóru yfir stöðuna á Laugalandi.

Stefnt er að því að Leikskóladeild verði tilbúin til notkunar áður en skóli byrjar. Von er á hurðum og innréttingum í byrjun september og unnið verður að lokafrágangi í framhaldi af því og því verði lokið í október.

Stefnt er að því að skólastofur grunnskólans verði tilbúnar áður en skólastarf hefst en þar er unnið að uppsetningu kerfislofts og loftræstingar, jafnhliða verður skipt um gólfefni á göngum að hluta.

Gluggar verða endurnýjaðir á austurhlið eldri byggingar, gluggar koma um miðjan júlí og stefnt er að því að lokafrágangi verði lokið að innan áður en skóli hefst en frágangur að utan í haust.

Í íþróttahúsi er búið að panta skiptitjald og körfur og stefnt er að uppsetningu í ágúst. Búið er að panta nýja lýsingu í íþróttasal en eftir er að fá staðfestingu á því hvenær hún berst. Uppsetning verður staðfest í framhaldi.

Hafin er vinna við að mála elstu þökin á skólabyggingunni og verður það unnið jafnt og þétt samhliða öðrum framkvæmdum.

Stefnt er að stjórnarfundi áður en nýtt skólaár hefst þar sem fjárhagsleg staða verkefnisins verður tekin fyrir og farið yfir uppfærða tímalínu.

Húsakynni bs - 2. fundur - 20.08.2026

Stjórn Húsakynna bs. fór yfir stöðu framkvæmda og viðhalds við eldra skólahúsnæði á Laugalandi.

Framkvæmdir við fyrsta áfanga endurbóta hafa reynst umfangsmeiri en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir og er fyrirséð að kostnaður við áfangann verði umfram fjárhagsáætlun. Við framkvæmd verksins hefur komið í ljós að ástand hússins var að ýmsu leyti verra en unnt var að sjá fyrir við gerð upphaflegrar kostnaðaráætlunar. Nauðsynlegt hefur því reynst að ráðast í viðbótarviðgerðir og endurbætur sem ekki voru hluti af upphaflegri verkáætlun en mikilvægt var að framkvæma samhliða verkinu.

Ljóst er að óska þarf eftir viðauka við fjárhagsáætlun til þess að mæta auknum kostnaði. Á næsta fundi stjórnar Húsakynna sem áætlaður er þriðjudaginn 8. september verður tekin fyrir uppfærð áætlun.

Um er að ræða fyrsta áfanga í fyrirhuguðum heildarendurbótum á húsnæðinu. Samhliða framkvæmdum hefur farið fram töluverð hönnunar- og undirbúningsvinna sem nýtist áfram við næstu áfanga og skapar betri forsendur fyrir kostnaðarmati og framkvæmd þeirra.

Stjórnin leggur áherslu á að reynslan af fyrsta áfanga verði nýtt við áframhaldandi undirbúning verkefnisins. Áður en ráðist verður í næstu áfanga verði lögð fram uppfærð heildaráætlun um framkvæmdir, áfangaskiptingu og kostnað, þar sem tekið verði mið af þeirri þekkingu á ástandi hússins sem nú liggur fyrir.

Stjórnin telur mikilvægt að nauðsynlegum endurbótum á húsnæðinu verði haldið áfram með skipulögðum hætti þannig að tryggt verði að húsnæðið uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til starfseminnar til framtíðar.

Samþykkt samhljóða