8. fundur 11. apríl 2016 kl. 10:00 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Ingvar Pétur Guðbjörnsson formaður
  • Karl Ölvisson aðalmaður
  • Jóhanna Hlöðversdóttir varamaður
  • Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri
  • Nanna Jónsdóttir sveitarstjóri
  • Heimir Hafsteinsson embættismaður
  • Klara Viðarsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Ágúst Sigurðsson

1.Sala íbúða við Giljatanga og lands úr Nefsholti II

1601011

Frágangur á landkaupum.
Tillaga er um að ganga frá kaupum Húsakynna bs á 10.4 ha úr landi Nefsholts II. Söluverð 8.200 þ. Hlunnindi eru undanskilin.



Samþykkt með tveimur atkvæðum, einn situr hjá (KÖ).



Jafnframt er tillaga um að fá fasteignasala til að verðmeta íbúðirnar 4 ásamt landspildu og undirbúa söluferli.



Samþykkt samhljóða.

2.Rekstraráætlun 2016 - Húsakynni bs

1603037

Enduruppröðun á rekstraráætlun
Lagt fram til kynningar.

3.Eignir í umsjá Húsakynna bs

1601012

Eignir á Holtamannaafrétti
Farið yfir lista sameiginlegra eigna á Holtamannaafrétti.



Tillaga um að sveitarstjórum verði falið að undirbúa útleigu reksturs eigna við Þóristungur og girðingar við Hald. Einnig verði kannaðir möguleikar með útleigu á umsjón og rekstri annarra girðinga og eigna á afréttinum.



Samþykkt samhljóða.

4.Erindi vegna sparkvallar

1603010

Frá sveitarstjórn Ásahrepps
Erindið tekið fyrir. Aflað hefur verið upplýsinga um helstu valkosti varðandi endurnýjun undirlags í sparkvöllum og verðkönnun hefur verið gerð. Enn liggur ekki fyllilega fyrir hvaða leið er best að fara hvað efnisval varðar en náið samráð er við önnur sveitarfélög og Samband íslenskra sveitarfélaga í málinu. Afgreiðslu frestað þar til frekari leiðbeiningar liggja fyrir.



Samþykkt samhljóða.

5.Erindi vegna hlaupabrautar

1603009

Frá sveitarstjórn Ásahrepps
Erindið tekið fyrir. Ekki er gert ráð fyrir þessari fjárfestingu í fjárhagsáætlun Húsakynna bs. Óski sveitarfélögin eftir því að Húsakynni komi upp og reki slíka braut þarf að koma sameiginleg ákvörðun um það. Erindið er í vinnslu hjá íþrótta- og tómstundanefnd Rangárþings ytra.

Fundi slitið - kl. 10:00.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?