Málsnúmer 1703021

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 34. fundur - 08.03.2017

Minnispunktar frá 28022017
Lagðir fram til kynningar minnispunktar frá umræðufundi oddvita og sveitarstjóra í Rangárvallasýslu. Á fundinum var m.a. rætt um hvað gera skuli varðandi áframhald vinnu við greiningu kosta og galla mögulegrar sameiningar.

Bókun sveitarstjórnar:
Sveitarstjórn Rangárþings ytra telur skynsamlegt að halda áfram því verki sem búið var að leggja drög að og láta fara fram greiningu á kostum og göllum þess að sameina Rangárvallasýslu í eitt sveitarfélag. Lagt er til að sótt verði um styrk til verksins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og að samráðsnefnd sem búið var að tilnefna fulltrúa í verði falið að undirbúa gagnasöfnun og sviðsmyndagreiningu.

Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 35. fundur - 05.04.2017

Minnispunktar frá 28032017
11.5 Þingfararkaup
Tillaga er um að Þorgils Torfi Jónsson og Yngvi Karl Jónsson verði fulltrúar sveitarstjórnar í samráðshóp um tengingu sveitarstjórnarlauna við þingfararkaup.

Samþykkt samhljóða.