Málsnúmer 1801016
Vakta málsnúmerÍþrótta- og tómstundanefnd - 14. fundur - 11.01.2018
Óska þarf eftir tilnefningum og í framhaldi veita viðurkenningu fyrir íþróttamann ársins 2017.
Markaðs- og kynningarfulltrúa falið að óska eftir tilnefningum frá íþrótta- og æskulýðsfélögum og auglýsa í Búkollu. Frestur er veittur til 23. janúar til að skila inn tilnefningum. Verðlaunahátíð verður ákveðin á næsta fundi.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 15. fundur - 03.05.2018
Fara þarf yfir tilnefningar til íþróttamanns ársins 2017, ákveða hver skuli hljóta titilinn og hverjir aðrir fái viðurkenningar. Einnig þarf að ákveða hvenær tilnefningin fer fram.
Farið var yfir tilnefningar og ákveðið hver skildi hljóta titilinn íþróttamaður ársins 2017 og hverjir aðrir skildu fá viðurkenningar. Veita skal viðurkenningar fimmtudaginn 17. maí. Markaðs- og kynningarfulltrúa falið að undirbúa viðburðinn í samráði við formann nefndarinnar.