Málsnúmer 1802002F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Rangárþings ytra - 45. fundur - 14.02.2018
Vísað er til umfjöllunar um einstaka liði en fundargerðin að öðru leyti til kynningar.
-
Vatnsveita Rangárþings ytra og Ásahrepps - 52 Fyrir liggur framkvæmdaáætlun Vatnsveitunnar til næstu þriggja ára en þar eru stærstu verkliðir bygging miðlunartanks í Hjallanesi og lagnir frá honum að Bjálmholti. Einnig liggja fyrir drög að framkvæmdaáætlun til næstu 10 ára. Stjórn veitunnar leggur til við eigendur að fyrsta skrefið verði að leita verðtilboða í gerð útboðsgagna og yfirferð á forsendum þriggja ára framkvæmdaáætlunarinnar, 2018-2020, hjá a.m.k. 3 verkfræðistofum. Veitustjóra verði falið að hrinda þessu í framkvæmd og leggja niðurstöður fram á næsta fundi.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Tillaga er um að sveitarstjórn staðfesti bókun stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs.
Samþykkt samhljóða.