Málsnúmer 1803003F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 46. fundur - 14.03.2018

Vísað er til umfjöllunar um einstaka liði en fundargerðin að öðru leyti til kynningar.
  • Oddi bs - 22 Lagður fram lánasamningur við Lánasjóð sveitarfélaga um lán að höfuðstólsupphæð kr. 97.343.135 með útborgunarupphæð kr. 96.000.000. Lánið er til 38 ára, uppgreiðanlegt eftir 16 ár. Vextir eru 2.5% og fyrstu 2 árin eru einvörðungu greiddir vextir. Tillaga um að samþykkja lántökuna og óska eftir því við eigendur að ábyrgjast lánið.

    Samþykkt samhljóða.



    Bókun fundar Tillaga er um að sveitarstjórn samþykki hér með á sveitarstjórnarfundi að veita einfalda ábyrgð og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, til tryggingar láns Odda bs hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstólsfjárhæð allt að kr. 97.343.135, með útgreiðslufjárhæð allt að kr. 96.000.000, með lokagjalddaga þann 15. nóvember 2055, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér. Nær samþykki sveitarstjórnar jafnframt til undirritunar lánasamnings og að sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir. Er lánið tekið til uppgjörs við Brú lífeyrissjóð sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Ágústi Sigurðssyni, 311064-4879, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. sveitarfélagsins að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

    Samþykkt samhljóða.