Málsnúmer 1808044
Vakta málsnúmerAtvinnu- og menningarmálanefnd - 1. fundur - 28.08.2018
Fulltrúar Á-lista í atvinnu- og menningarmálanefnd Rangárþings ytra leggja til eftirfarandi mál til umræðu á fundinum.
- Hvernig getur sveitarfélagið auðveldað fyrirtækjum að hefja eða flytja starfsemi sína í sveitarfélagið.
- Hvernig getur sveitarfélagið auðveldað fyrirtækjum að hefja eða flytja starfsemi sína í sveitarfélagið.
Góð umræða skapaðist á fundinum. Mikilvægt er að farið verði í það verkefni að undirbúa kynningarefni til þess að upplýsa um hvað sveitarfélagið hefur uppá að bjóða fyrir stór og smá fyrirtæki. Markaðs- og kynningarfulltrúa falið að undirbúa málið fyrir næsta fund nefndarinnar.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 2. fundur - 11.10.2018
Eftir að hafa unnið að málinu frá síðasta fundi er tillaga um að atvinnufulltrúum SASS verði boðið til fundar við atvinnu- og menningarmálanefnd.
Samþykkt samhljóða. Markaðs- og kynningarfulltrúa falið að gera tillögu að fundartíma og undirbúa fundinn.