Málsnúmer 1811011F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Rangárþings ytra - 6. fundur - 13.12.2018
Vísað er til umfjöllunar um einstaka liði en fundargerðin að öðru leyti staðfest.
-
Byggðarráð Rangárþings ytra - 6 Stjórn Rangárbakka hefur leitað til sveitarstjórnar Rangárþings ytra með styrk í formi vinnuframlags markaðs- og kynningarfulltrúa til aðstoðar undirbúnings Landsmóts hestamanna 2020 sem haldið verður á Rangárbökkum við Hellu. Tillaga er um að byggðarráð leggi til við sveitarstjórn að verða við beiðninni sem skilgreint væri 25% starf árið 2019.
Samþykkt með tveimur atkvæðum (HE,HT), einn var á móti (MHG).
Bókun Á-lista:
Undirrituð verður að hafna beiðni Rangárbakka ehf. um að sveitarfélagið Rangárþing ytra styrki einkahlutafélagið vegna Landsmóts hestamanna 2020 í formi þess að launþegi Rangárþings ytra vinni 25% af sínu starfi fyrir einkahlutafélagið allt árið 2019. Málið er fordæmalaust.
Helstu rök mín gegn samþykki þessarar beiðni eru:
* Styrkbeiðandi er einkahlutafélag í eigu fyrirtækja, hestamannafélaga og sveitarfélaga. Tel ég það afar slæmt fordæmi að einkahlutafélög geti sótt um slíka styrki á forsendum sem þessum.
* Ef styrkbeiðni þessi verður samþykkt tel ég að sett verði fordæmi sem erfitt verður að vinda ofan af ef gæta á jafnræðis við önnur fyrirtæki sem gætu sótt um álíka styrki í framtíðinni.
* Ekki liggur fyrir í gögnum hve umbeðinn styrkur er hár í krónum talið.
* Ekki liggur fyrir í gögnum hver áætlun tekna og útgjalda er vegna Landsmóts 2020.
* Full þörf er á 100% starfshlutfalli markaðs- og kynningarfulltrúa hjá sveitarfélaginu nú sem áður.
Ég óska þess að Landsmót hestamanna 2020 takist vel en tel eðlilegast að Rangárbakkar ehf. sæki um fjárstuðning til allra eigenda félagsins til að ráða starfskraft við undirbúning landsmótsins. Ég vil tryggja sveitarfélaginu áfram öfluga vinnu markaðs- og kynningarfulltrúa í fullu starfi fyrir sveitarfélagið.
Margrét Harpa Guðsteinsdóttir
Fulltrúi Á-lista í byggðarráði
Bókun fundar Tillaga um að sveitarstjórn verði við beiðni Rangárbakka með styrk sem samsvarar 25% vinnuframlagi Markaðs- og kynningarfulltrúa árið 2019. Styrkurinn samsvarar kr. 3.146.250 sem er 25% hlutfall af launum og starfskostnaði skv. fjárhagsáætlun ársins 2019. Ekki er um útgjaldaaukningu að ræða heldur flutning á milli liða innan sama málaflokks.
Samþykkt með 4 atkvæðum (ÁS,BG,HE,HT), 3 á móti (MHG,ST,YH)
Bókun D-lista
Rangárbakkar eru einkahlutafélag sem er um 99% í eigu hestamannafélaga og sveitarfélaga í héraði. Landsmót hestamanna er langstærsti viðburður sem fram fer í sveitarfélaginu Rangárþingi ytra og reyndar einn stærsti viðburður sem haldinn er hérlendis. Reynslan sýnir að áhrifa viðburðarins gætir verulega hjá þjónustuaðilum á svæðinu auk þess sem bein áhrif eru á þá líflegu atvinnu-, íþrótta-, og menningarstarfsemi sem tengist hestum í héraðinu. Það er útbreidd skoðun að mekka íslenska hestsins á heimsvísu sé í Rangárvallasýslu, hér eru mörg stærstu og öflugustu hrossaræktarbúin og atvinnu- og keppnisfólk fjölmennt í greininni. Þá er æskulýðsstarf í hestamennsku hér um slóðir í algjörum sérflokki eins og dæmin sanna. Við teljum því ljúft og skylt að styðja við bakið á mótshöldurum sem að þessu sinni er okkar heimafólk í sjálfboðavinnu. Rétt er að benda á að markaðs- og kynningarfulltrúi sveitarfélagsins hefði að sjálfsögðu stutt við þennan viðburð hvort sem er, sem hluta af sínu starfi, rétt eins og aðra viðburði af svipuðum toga. Við teljum þetta gott fordæmi og myndum bregðast við með svipuðum hætti ef leitað væri eftir slíkum stuðningi við aðra sambærilega viðburði sem færu hér fram og hefðu viðlíka jákvæð samfélagsleg áhrif.
Ágúst Sigurðsson
Björk Grétarsdóttir
Haraldur Eiríksson
Hjalti Tómasson
Bókun Á-lista:
Fulltrúar Á lista ítreka bókun frá síðasta fundi byggðaráðs og telja að áfram sé full þörf á 100% starfshlutfalli markaðs- og kynningarfulltrúa fyrir sveitarfélagið líkt og verið hefur. Ef styrkur er talinn réttlætanlegur þykir okkur eðlilegra að veita hann í formi beinnar peningagreiðslu, mögulega í hlutfalli við eign sveitarfélagsins í Rangárbökkum ehf. Sveitarstjórn á ekki að setja starfsmenn í þá stöðu að lækka starfshlutfall sitt í starfi þar sem verkefni eru ærin fyrir.
Margrét Harpa Guðsteinsdóttir
Steindór Tómasson
Yngvi Harðarson