6. fundur 05. desember 2018 kl. 08:00 - 08:45 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Haraldur Eiríksson formaður
  • Hjalti Tómasson aðalmaður
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir aðalmaður
Fundargerð ritaði: Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri

1.LM 2020 - ósk um stuðning vegna undirbúnings

1811014

Stjórn Rangárbakka hefur leitað til sveitarstjórnar Rangárþings ytra með styrk í formi vinnuframlags markaðs- og kynningarfulltrúa til aðstoðar undirbúnings Landsmóts hestamanna 2020 sem haldið verður á Rangárbökkum við Hellu. Tillaga er um að byggðarráð leggi til við sveitarstjórn að verða við beiðninni sem skilgreint væri 25% starf árið 2019.

Samþykkt með tveimur atkvæðum (HE,HT), einn var á móti (MHG).


Bókun Á-lista:

Undirrituð verður að hafna beiðni Rangárbakka ehf. um að sveitarfélagið Rangárþing ytra styrki einkahlutafélagið vegna Landsmóts hestamanna 2020 í formi þess að launþegi Rangárþings ytra vinni 25% af sínu starfi fyrir einkahlutafélagið allt árið 2019. Málið er fordæmalaust.

Helstu rök mín gegn samþykki þessarar beiðni eru:
* Styrkbeiðandi er einkahlutafélag í eigu fyrirtækja, hestamannafélaga og sveitarfélaga. Tel ég það afar slæmt fordæmi að einkahlutafélög geti sótt um slíka styrki á forsendum sem þessum.
* Ef styrkbeiðni þessi verður samþykkt tel ég að sett verði fordæmi sem erfitt verður að vinda ofan af ef gæta á jafnræðis við önnur fyrirtæki sem gætu sótt um álíka styrki í framtíðinni.
* Ekki liggur fyrir í gögnum hve umbeðinn styrkur er hár í krónum talið.
* Ekki liggur fyrir í gögnum hver áætlun tekna og útgjalda er vegna Landsmóts 2020.
* Full þörf er á 100% starfshlutfalli markaðs- og kynningarfulltrúa hjá sveitarfélaginu nú sem áður.

Ég óska þess að Landsmót hestamanna 2020 takist vel en tel eðlilegast að Rangárbakkar ehf. sæki um fjárstuðning til allra eigenda félagsins til að ráða starfskraft við undirbúning landsmótsins. Ég vil tryggja sveitarfélaginu áfram öfluga vinnu markaðs- og kynningarfulltrúa í fullu starfi fyrir sveitarfélagið.

Margrét Harpa Guðsteinsdóttir
Fulltrúi Á-lista í byggðarráði



2.Skógasafn stjórnarfundur 2 - 2018

1811065

Fundargerð frá 12. nóvember 2018
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

3.Ósk um styrk á móti fasteignagjöldum

1811066

Árbæjarsókn óskar eftir styrk á móti fasteignagjöldum.
Sóknarnefnd Árbæjarsóknar óskar eftir styrk á móti fasteignagjöldum ársins 2018. Tillaga um að samþykkja styrkinn skv. gildandi reglum sveitarfélagsins um slíka styrki.

Samþykkt samhljóða.
Fundargerð yfirlesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 08:45.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?