Málsnúmer 1911004F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Rangárþings ytra - 17. fundur - 12.12.2019
Vísað er til umfjöllunar um einstaka liði en fundargerðin að öðru leyti staðfest
-
Byggðarráð Rangárþings ytra - 19 Lögð fram tillaga að viðauki 4 við fjárhagsáætlun Rangárþings ytra árið 2019.
Viðauki 4 gerir ráð fyrir auknum rekstrartekjum í A-hluta að fjárhæð 30 milljónir kr, einnig er gert ráð fyrir að rekstrarkostnaður lækki um 13,4 mkr í A-hluta. Gert er ráð fyrir auknum rekstrarkostnaði í B-hluta að fjárhæð 9,1 mkr. Áhrif á rekstur A-hluta eru jákvæð um 43,4 mkr og samtals áhrif á rekstur A og B hluta eru jákvæð um 34,3 mkr. Gert er ráð fyrir aukinni fjárfestingu að fjárhæð 12,3 mkr í A-hluta en lækkun fjárfestingar í B-hluta að fjárhæð 33,5 mkr. Samanlagt fyrir A og B hluta er fjárfesting að lækka um 21,2 mkr. Viðauki 4 kallar ekki á auknar fjárheimildir.
Viðaukinn borinn undir atkvæði og samþykktur samhljóða.
Bókun fundar Tillaga er um að sveitarstjórn staðfesti bókun byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða.